Uppgjör ríkisins í stórum dráttum í takt við áætlanir

Miklu munar fyrir ríkið um arðgreiðslur sem koma frá bönkunum.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Auglýsing

Heild­ar­tekjur rík­is­ins á tíma­bil­inu jan­úar til og með júlí á þessu ári námu 358,7 millj­örðum króna sem var 3,5 millj­örðum undir áætl­un. Þetta er meðal þess sem fram kemur í sex mán­aða upp­gjöri rík­is­ins frá Fjár­sýslu rík­is­ins.  

Miklu munar um að tekju­skattur ein­stak­linga var 8,7 millj­örðum króna undir áætlun sem skýrist af um 10 millj­arða króna end­ur­greiðslu vegna upp­gjörs árs­ins 2016 sem var í júní en áætlun gerði ráð fyrir að yrði í júlí. 

Í stórum dráttum telst upp­gjörið í takt við vænt­ingar stjórn­valda, en þó má lesa út úr upp­gjör­inu að krefj­andi verður fyrir ríkið að halda aftur af útgjalda­aukn­ingu á síð­ari hluta árs­ins. 

Auglýsing

Tekju­jöfn­uður tíma­bils­ins er fjórir millj­arðar króna sem er 3,8 millj­örðum króna umfram áætlun tíma­bils­ins. „Ef tekið er til­lit til frá­vika á end­ur­greiðslu tekju­skatts, fjár­heim­ilda­stöðu fyrra árs og vaxta­gjalda við upp­greiðslu á erlendu skulda­bréfi þá er tekju­jöfn­uður 5,1 millj­arðar umfram áætlun tíma­bils­ins,“ segir í til­kynn­ingu vegna upp­gjörs­ins.

Sé litið til þess hvernig áætl­anir voru og fjár­heim­ild­ar, þá voru útgjöld 10,7 millj­örðum króna hærri. 

Miklu munar fyrir rík­ið, þegar kemur að arð­greiðslum úr bönk­unum tveimur sem rík­ið, Lands­bank­anum (ríf­lega 98 pró­sent) og Íslands­banka (100 pró­sent). Sam­an­lagt eigin fé bank­anna er yfir 450 millj­arðar króna.

Fjár­magnstekjur námu 28,7 millj­örðum eða 4,4 millj­örðum yfir áætlun „sem skýrist aðal­lega af arð­greiðslum af eign rík­is­ins í Lands­bank­anum og Íslands­banka,“ eins og segir í til­kynn­ing­u. 

Helstu tölur úr rekstri ríkissjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent