Ekki kostnaðarlega forsvaranlegt að halda Háholti opnu

Félags- og jafnréttisráðherra útilokar að meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði verði opnað aftur. Rekstur þess kostaði hálfan milljarð á þremur árum en vistmenn voru að jafnaði 1-3. „Skelfileg meðferð á opinberu fé“ sagði forstjóri Barnaverndarstofu.

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Auglýsing

Þor­steinn Víglunds­son, félags­mála- og jafn­rétt­is­ráð­herra, segir að Barna­vernd­ar­stofa hafi næg úrræði til að sinna því starfi sem með­ferð­ar­heim­ilið Háholt sinnti áður án þess að byggt hafi verið upp nýtt með­ferð­ar­úr­ræði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fag­leg rök hafi legið fyrir því að Háholti hafi verið lokað og hann telji að engin þörf hafi verið fyrir sig að grípa inn í það ferli.

­Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, hefur óskaði í síð­ustu viku eftir fundi í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis til að ræða mál­efni Háholts í Skaga­firði. Með­ferð­ar­heim­il­inu var lokað 1. júlí síð­ast­lið­inn og Stein­unn Þóra hefur óskað eftir því að fá skýr­ingar af hverju vinna við nýtt með­ferð­ar­úr­ræða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi ekki haf­ist „þar sem þessi röð atburða bitnar á ungu fólki sem þarf á með­ferð að halda nún­a“.

Kostn­aður yfir 150 millj­ónir á ári en eft­ir­spurn nán­ast engin

Háholt hefur  starfað sem með­­­ferð­­ar­heim­ili í næstum tvo ára­tugi. Rekst­­ur­inn var einka­­rekstur sem hvíldi á þjón­ust­u­­samn­ingi við Barna­vernd­­ar­­stofu. Und­an­farin ár hefur áherslan í starfi Barna­vernd­ar­stofu verið á svo­­nefnda Fjöl­­kerfa­­með­­­ferð, MST, og sam­hliða hefur dregið úr þörf á stofn­ana­­með­­­ferð á borð við þá sem rekin var í Háholti. Vegna þessa hefur með­ferð­ar­heim­ilum skipu­lega verið lokað á und­an­förnum ára­tug­um. Eft­ir­spurn eftir þeim hefur ein­fald­lega verið arfa­slök.

Auglýsing
Samn­ing­ur­ Háholts átti að renna út í lok árs 2013 og í ljósi þess að eft­ir­­spurnin eftir plássi þar var nær engin var ein­ingin ekki talin rekstr­­ar­hæf. Starfs­­fólk­inu var því öllu sagt upp í lok árs 2013 og við blasti að rekstr­­ar­­sögu þessa með­­­ferð­­ar­heim­ilis væri lok­ið.  Það breytt­ist skyndi­lega í nóv­em­ber 2013 þegar þáver­andi félags­mála­ráð­herra, Eygló Harð­ar­dótt­ir, fól Barna­vernd­­ar­­stofu að ganga til við­ræðna um nýjan samn­ing um rekstur með­­­ferð­­ar­heim­ilis í Háholti þar sem gert yrði ráð fyrir að heim­ilið fengi það tíma­bundna hlut­verk að vista fanga undir 18 ára aldri sem dæmdir væru til óskil­orðs­bund­innar refs­ing­­ar.

Þjón­ust­u­­samn­ing­­ur­inn við Háholt gilti fram til 1. sept­em­ber 2017 og kost­aði um og yfir 150 millj­­ónir króna á ári, sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum frá Barna­vernd­­ar­­stofu. Sam­an­lagt kost­uðu árin þrjú sem hann náði yfir því á milli 450-500 millj­­ónir króna.

„Skelfi­leg með­ferð á opin­beru fé“

Sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum frá Barna­vernd­­ar­­stofu var einn ein­stak­l­ingur vistaður á Háholti í kjöl­far dóms frá því að þjón­ust­u­­samn­ing­­ur­inn var gerð­­ur. Sú vist stóð yfir í nokkra mán­uði. Á þeim tíma sem þjón­ustu­samn­ing­ur­inn var í gildi voru 1-3 ein­stak­l­ingar verið vistaðir á Háholti að jafn­­aði.

Alls voru inn­­rit­aðir ein­stak­l­ingar sex á árinu 2014, þrír árið 2015 og sex á árinu 2016. Til sam­an­­burðar má nefna að 112 ein­stak­l­ingar voru inn­­­rit­aðir í með­­­ferð­­ar­úr­ræði Barna­vernd­­ar­­stofu á árinu 2016 til við­­bótar við 47 sem nutu með­­­ferðar á árinu, en höfðu inn­­­rit­­ast 2015. Nýt­ing á úrræð­inu var því mjög léleg.

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, sagði í við­tali við Kjarn­ann í apríl að þetta hafi verið „skelfi­leg með­ferð á opin­beru fé.“

Þor­steinn Víglunds­son segir að staða máls­ins í dag sé sú að Barna­vernd­ar­stofa sæk­ist ekki eftir end­ur­nýjun samn­inga við Háholt. Eft­ir­spurn sé fyrst og fremst eftir þjón­ustu í námunda við heim­ili og miklu meiri áhersla sé nú á að veita börnum og for­eldrum þjón­ustu sam­an. „Svona heim­ilum hefur verið lokað á und­an­förnum árum. For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu kynnti fyrir mér fag­legu rökin fyrir því að loka þeim og það er engin þörf fyir mig að grípa þarna inn í. Það væri óeðli­legt fyrir mig að grípa inn í þá fag­legu ákvörðun Barna­vernd­ar­stofu. Hún hefur eftir sem áður næg úrræði til að sinna þvi sem hún þarf að sinna. Kostn­að­ar­lega sé var ein­fald­lega ekki for­svar­an­legt að halda þessu við.“

Búið er að taka ákvörðun um að byggja nýja með­­­ferð­­ar­­stofnun nær höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu. Því verk­efni hefur þegar verið tryggt fjár­­heim­ild til upp­­­bygg­ingar og rekstr­­ar­­fé. Þor­steinn segir að Fram­kvæmd­ar­sýsla rík­is­ins sé með málið á sínu borði og þurfi að finna stofn­un­inni stað­setn­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent