Alveg ósannað að myglusveppur í húsum sé heilsuspillandi

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar, erfðagreiningar segir í grein í Fréttablaðinu að baráttan við myglusvepp í húsum sé orðinn að risavöxnum iðnaði.

Kári Stefánsson
Auglýsing

„Þrátt fyrir vand­lega leit í lækn­is­fræði­bók­mennt­u­m okkar tíma hefur mér ekki tek­ist að finna þess ­merki að búið sé að sýna fram á með vís­inda­legum aðferðum að myglu­sveppir í húsum vegi að heilsu manna.“

Þetta segir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, í grein í Frétta­blað­inu í dag, þar sem hann fjallar um myglu­svepp í hús­um. Hann segir engan iðnað í land­inu hafa vaxið hraðar - að ferða­þjón­ust­unni und­an­skil­inni - heldur en iðnað sem tengdur er myglu­svepp. 

Hann segir að íslensk þjóð virð­ist vera sann­færð um slæm áhrif mygslu­svepps þrátt fyrir að engar sann­anir séu til fyrir því.

Auglýsing

„Þrátt fyrir það velkist ­ís­lensk þjóð ekki í vafa um áhrif myglu­sveppa á heilsu og má sjá ­merki þess víða í sam­fé­lag­inu. Til­ ­dæmis ef ekið er austur Sæbraut­ina blasir við risa­stórt hús, autt, þar sem einu sinni var banki sem var ýmist ­fallítt eða ekki. Húsið var rýmt af því að margir starfs­menn bank­ans urð­u la­snir og sumir bráðla­snir af völd­um myglu­svepps, sem lækn­is­fræð­in veit ekki enn hvort vegur að heilsu ­fólks eða ekki. Þetta hús er svo stórt að ef það hefði verið rýmt áður en draug­arnir hurfu annað hefðu þeir allir rúm­ast þar, getað flutt þang­að ­vegna þess að mér finnst lík­legt að draugar séu ónæmir fyrir myglu­svepp­um,“ segir Kári.

Hann segir að það væri ekki úr vegi, að byrja á því að rann­saka hvort myglu­sveppur sé heilsu­spill­andi áður en risa­vaxin hús eru dæmd ónýt. „Svo er það hús Orku­veit­unnar og ­þús­undir ann­arra húsa víðs­veg­ar um landið og okkur er sagt að tjón­ið af völdum myglu­svepps á Ísland­i ­nemi tugum milj­arða. Þetta byrj­að­i á því að inn í hús nokkur kom ung ­kona í kaf­ara­bún­ingi (ghost buster) og fann myglu­sveppi grimmi­lega ­sem hún lagði á mjaðma­hnykk. ­Síðan þá hefur bar­áttan við myglu­svepp­inn orðið mjög stór iðn­að­ur á Íslandi og engin atvinnu­grein ­vaxið meira í land­inu nema ferða- ­þjón­ust­an. Nú er ég ekki að halda því fram að það sé loku fyrir það skotið að myglu­sveppur í húsum geti vald­ið heilsu­vanda hjá þeim sem þar búa eða vinna á sama máta og ég er ekki viss um nema draugar séu til­, í báðum þessum til­fellum vant­ar ein­fald­lega sönnun þess að svo ­sé. Þess vegna væri ekki úr vegi að ­byrja á því að rann­saka málið áður­ en hús eru dæmd ónýt og rifin og tug­milj­arða króna tjón gert að raun­veru­leika. Rann­sókn á skaða þeim sem myglu­sveppur kann að ­valda á heilsu manna verður ein­göng­u unnin á Íslandi vegna þess að í öðrum löndum búa mað­ur­inn og svepp­ur­inn í frið­sömu sam­býl­i og hvor­ugur kvartar undan hin­um,“ segir Kári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent