Ólafía í samninganefnd ríkisins

Fjármála- og efnahahagsráðherra vill gera stutta samninga við valda hópa, leggja áherslu á kaupmáttaraukningu og kannar að lækka skatta á lágtekjuhópa. Aðstoðarmaður hans, sem var um árabil formaður VR, verður í samninganefnd ríkisins.

Ólafía B. Rafnsdóttir
Ólafía B. Rafnsdóttir
Auglýsing

Ólafía B. Rafns­dótt­ir, aðstoð­ar­maður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er í stjórn samn­inga­nefndar rík­is­ins vegna fyr­ir­hug­aðra kjara­samn­inga. Ólafía var um ára­bil for­maður VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, og vara­for­maður Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ). Þá sat hún á hinum enda samn­inga­borðs­ins, þ.e. sem full­trúi launa­fólks.

Hún tap­aði for­manns­kosn­ingum í VR fyrir Ragn­ari Þór Ing­ólfs­syni fyrr á þessu ári og var skömmu síðar ráðin aðstoð­ar­maður Bene­dikts Jóhann­es­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Nú er ljóst að hún verður áfram beinn þátt­tak­andi í kom­andi kjara­við­ræð­um, en þó í nýju hlut­verki.

Gunnar Björns­son skrif­stofu­stjóri Kjara- og mannauðs­sýslu rík­is­ins er for­maður samn­inga­nefndar rík­is­ins. Auk hans og Ólafíu eru Guð­mundur H. Guð­munds­son, sér­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Guð­rún Ragn­ars­dótt­ir, full­trúi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Unnur Ágústs­dótt­ir, full­trúi heil­brigð­is­ráð­herra, og Þór­lindur Kjart­ans­son, full­trúi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í samn­inga­nefnd­inni. Guð­mundur er vara­for­maður henn­ar.

Auglýsing
Áherslur og skipu­lag rík­is­ins í kom­andi kjara­við­ræðum var kynnt í gær. Bene­dikt Jóhann­es­son sagði á blaða­manna­fundi af því til­efni að markið rík­is­ins væri að ná sam­stöðu um það hvernig eigi að við­halda þeirri miklu kaup­mátt­ar­aukn­ingu sem orðið hefur á und­an­förnum árum og byggja upp sam­keppn­is­hæft starfs­um­hverfi rík­is­ins. Hann úti­lok­aði ekki að ráð­ist yrði í skatt­kerf­is­breyt­ingar til að bæta stöðu hinna lægst laun­uð­ustu og vildi semja til skamms tíma, eða rúm­lega eins árs, við háskóla­menn og kenn­ara til að sam­stilla kjara­samn­inga á öllum vinnu­mark­að­in­um.

Hann benti á að kaup­máttur launa hefði auk­ist um 25 pró­sent frá jan­úar 2014. „Okkar mik­il­væg­asta verk­efni er að ná sam­stöðu um hvernig við getum við­haldið þeim kaup­mætti. Til þess að gera það er nauð­syn­legt að horfa á heild­ar­mynd­ina, það er að þegar allt er tekið saman verði nið­ur­staðan góð fyrir alla. Þess vegna munum við leggja áherslu á að horfa til þró­unar efna­hags­mála og mögu­leg áhrif kjara­samn­inga á hana og öfugt. Þar teljum við mik­il­vægt að skapa for­sendur fyrir stöðugra gengi og lægri vexti auk þess sem lækkun virð­is­auka­skatts mun styðja við okkar mark­mið um að styrkja kaup­mátt. Þá viljum við fara yfir aðra þætti sem laun­þega­hreyf­ing­arnar hafa lagt áherslu á og miða að því að skapa sam­keppn­is­hæft vinnu­um­hverfi hjá rík­inu, eins og vinnu­til­högun og önnur atriði sem snúa ekki endi­lega beint að launa­liðn­um.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent