Frumvarp á leiðinni um hæli fyrir stúlkurnar

Frumvarp verður lagt fram í vikunni um að veita tveimur stúlkum sem á að vísa úr landi íslenskan ríkisborgararétt. Dómsmálaráðherra virðist ekki geta treyst á stjórnarmeirihlutann til að fella frumvarpið.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, tilkynnti um frumvarpið um helgina.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, tilkynnti um frumvarpið um helgina.
Auglýsing

Sam­fylk­ingin ætlar að leggja fram frum­varp í vik­unni um að veita tveimur stúlkum úr hópi hæl­is­leit­enda, Haniye og Mary, og fjöl­skyldum þeirra íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Til stendur að vísa stúlk­unum úr landi. Logi Ein­ars­son, for­maður flokks­ins, segir í stöðu­upp­færslu á Face­book í gær að flokk­ur­inn hafi þegar óskað eftir með­flutn­ingi allra þing­manna þegar málið verði lagt fram og hafi nokkrir þegar svarað ját­andi. Þeir komi úr ýmsum flokk­um. Þing­menn þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka, Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Vinstri grænna,  sendu til að mynda sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu frá sér um helg­ina þar sem þeir mót­mæltu brott­vísun stúlkn­anna og tveir stjórn­ar­þing­menn hafa gagn­rýnt ákvörð­un­ina opin­ber­lega. Því virð­ist sem dóms­mála­ráð­herra muni ekki geta treyst á stjórn­ar­meiri­hlut­ann til að fella frum­varpið komi það til atkvæða­greiðslu.

Sig­ríður And­er­sen dóms­mála­ráð­herra sagði um helg­ina að ákvörðun um brott­vísun stúlkn­anna yrði ekki end­ur­skoð­uð. Það kæmi ekki til greina. Í sam­tali við RÚV sagði hún: „Nei, það kemur ekki til greina að end­ur­skoða mál sem dúkka hérna til­vilj­ana­kennt upp í umræð­unni. Það kemur ekki til greina af minni hálfu sem ráð­herra að taka fram fyrir hend­urnar á sjálf­stæðri stjórn­sýslu­stofnun eins og kæru­nefnd í málum sem hafa fengið tvö­falda máls­með­ferð hér á land­i.“

Að minnsta kosti tveir stjórn­ar­þing­menn hafa lýst því yfir að þeir mót­mæli brott­vísun stúlkn­anna. Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisn­ar, sagði í stöðu­upp­færslu á Face­book fyrir helgi að hún væri þeirrar skoð­unar „að sein með­ferð mála varpi enn rík­ari ábyrgð á okkur varð­andi það að láta mannúð ráða för frekar en ítr­ustu laga- og reglu­gerð­ar­túlk­an­ir. Hin níger­ísku Sunday Iserien og Joy Lucky og dóttir þeirra Mary sem og afgönsku feðginin Hanyie og Abra­him Maleki eiga það t.d. skilið af okkar hálfu.

Auglýsing

Ég styð heils­hugar að þessar tvær fjöl­skyldur fái að halda áfram að byggja upp nýtt líf hér á landi. Að baki þeim stuðn­ingi mínum liggja mann­úð­ar­á­stæð­ur. Stundum er það ein­fald­lega nóg.“

Pawel Bar­toszek, þing­maður Við­reisn­ar, sagði á sama vett­vangi á laug­ar­dag að það mætti alltaf taka „lög eru lög“ afstöðu en þá væri „bara spurn­ing hvernig lögin eigi að vera og ég get ekki sagt að mér finnst lögin og fram­kvæmd þeirra vera í lagi ef þetta er hægt. Það á að slá á frest fram­kvæmd þess­ara brott­vís­ana og skoða í kjöl­farið hvernig við tryggjum að það sem við gerum stenst Barna­sátt­mála SÞ.“

Ljóst er því að dóms­mála­ráð­herra getur því ekki treyst á stjórn­ar­meiri­hlut­ann til að koma í veg fyrir að frum­varpið verði að lög­um, komi það til atkvæða­greiðslu. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa sem stendur eins manns meiri­hluta á Alþingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent