„Djúpstæð“ vonbrigði þjóðarinnar verður að taka alvarlega

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingmaður Viðreisnar segir að farsælast sé að boða sem fyrst til kosninga.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Auglýsing

„Svona er póli­tíkin og hún mun hafa sinn gang næstu daga, vikur og mán­uði. Að mínu mati er æski­leg­ast að boða til kosn­inga eins fljótt og auðið er.“

Þetta segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, á Face­book síðu sinni. Hún segir djúp­stæð von­brigði þjóð­ar­innar með það hvernig stjórn­völd hafi brugð­ist við í málum sem hafa verið í brennid­epli verði að taka alvar­lega. „Síð­ustu dagar sýna okkur afdrátt­ar­laust að þol­in­mæði sam­fé­lags­ins gagn­vart kyn­ferð­is­legu ofbeldi og hvernig kerfið með­höndlar slík brot og eft­ir­mála þeirra er á þrot­um. Kerfi sem ein­kenn­ist af leynd­ar­hyggju og stendur vörð um ofbeld­is­menn en ekki fórn­ar­lömb er mein­gallað og djúp­stæð von­brigði þjóð­ar­innar með við­brögð stjórn­valda í þessum málum er eitt­vað sem við verðum að taka mjög alvar­lega. Verk­efni stjórn­mál­anna er að breyta úreltum kerfum og upp­ræta sterka til­hneig­ingu ákveð­inna hópa til að standa vörð um sér­hags­muni fram yfir almanna­hags­mun­i,“ segir Þor­gerður Katrín. 

Þing­flokkur Við­reisnar hefur þegar sent frá sér yfir­lýs­ingu um að best sé að boða til kosn­inga sem fyrst, í ljósi stöð­unnar sem upp er komin í stjórn­mál­un­um. 

Auglýsing

Eins og kunn­ugt er sleit Björt fram­tíð sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu seint í gær­kvöld­i. 

Ástæðan var trún­að­ar­brest­ur, í tengslum við með­mæla­bréf sem Bene­dikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­son­ar, skrif­aði vegna umsóknar Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­son­ar, dæmds barn­a­níð­ings, um upp­reista æru. 

Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra lét Bjarna vita af með­mælum föður hans í júlí. Aðrir vissu ekki af þessum upp­lýs­ing­um.

Frétta­stofa RÚV vís­aði því til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, þegar dóms­mála­ráðu­neytið neit­aði að afhenda upp­lýs­ingar um þá sem vott­uðu góða hegðun í umsóknum um upp­reista æru. Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­inn­ar, sem ekki lá fyrir fyrr en í þessum mán­uði, kom fram að afhenda mætti upp­lýs­ingar um þá sem votta góða hegð­un. 

Dóms­mála­ráðu­neytið hyggst birta upp­lýs­ing­arnar á vef ráðu­neyt­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent