Tímamót í íslensku samfélagi - Umburðarlyndi gagnvart kynbundnu ofbeldi ekki liðið lengur

Kvenréttindafélag Íslands segir í ályktun að samfélagið hafi ekki lengur umburðarlyndi gagnvart kynbundnu ofbeldi og að fréttir dagsins séu því tímamót fyrir Íslendinga.

Kvenréttindafélag Íslands
Auglýsing



Tíma­mót áttu sér stað í íslensku sam­fé­lagi í gær­kvöldi þegar rík­is­stjórn lands­ins féll, ekki vegna pen­inga, ekki vegna póli­tísks ágrein­ings atvinnu­stjórn­mála­manna, heldur vegna þess að konur höfðu hátt. Fólk hafði hátt. Þetta kemur fram í ályktun sem Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands sendi frá sér nú rétt fyrir hádegi. Þar kemur enn­fremur fram að fólk hafi haft hátt um ofbeldi sem konur og börn voru beitt. „Fólk hafði hátt þegar dæmdir ofbeld­is­menn bönk­uðu á dyr hjá vinum sínum til að biðja um greiða, til að leita sam­trygg­ing­ar­inn­ar. Fólk hafði hátt þegar skrifræðið stimpl­aði hugs­un­ar­laust á papp­íra sem veittu ofbeld­is­mönnum upp­reist æru, án umræðu, án gagn­sæ­is,“ segir í álykt­un­inni.

Ástæða álykt­un­ar­innar er að stjórn Bjartrar fram­tíðar kom saman í gær­kvöldi til að ræða stöð­una sem komin var upp eftir að í ljós kom að faðir for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði undir með­mæla­bréf með beiðni Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar um að hann fengi upp­reist æru. Í fram­hald­inu sleit Björt fram­tíð rík­is­stjórn­ar­sam­starf­in­u. Hjalti Sig­ur­jón Hauks­son fékk upp­reist æru fyrr á árinu en hann hlaut á sínum tíma fimm og hálfs árs fang­els­is­dóm fyrir barn­a­níð. Hann braut gróf­lega gegn stjúp­dóttur sinni, nær dag­lega, frá því hún var fimm til sex ára og þar til hún var á átj­ánda ald­ursári. 

Auglýsing

Mikil umræða hefur verið síðan í sumar um ferlið sem upp­reist æra felur í sér og hafa fórn­ar­lömb stigið fram og mót­mælt ferl­inu öllu. Helst hefur borið á frétta­flutn­ingi af málum þeirra Roberts Dow­ney og Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­son­ar. Mikið hefur verið rætt um hvort þörf sé á að auka gagn­sæi og breyta jafn­vel ferl­inu öllu. Myllu­merkið #höf­um­hátt hefur farið eins og eldur í sinu í netheimum og margir látið í sér heyra til að mót­mæla. 

Í ályktun Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands kemur einnig fram að Íslend­ingar sem sam­fé­lag hafi ekki lengur umburð­ar­lyndi fyrir kyn­bundnu ofbeldi, fyrir ofbeldi gegn konum og börn­um. Allt of lengi hafi ríkt þöggun í land­inu um þá stað­reynd að stór hluti kvenna og barna verði fyrir ofbeldi af hálfu þeirra sem næst þeim standa og séu ekki örugg á þeim stað sem þau ættu að vera örugg­ust á, á heim­ilum sín­um.

„Við erum full­södd á kerfi sem verndar ofbeld­is­menn og er sama um þolend­ur. Ofbeldi gegn konum er bein ógn við lýð­ræð­is­lega þátt­töku kvenna og þar með við lýð­ræði lands­ins. Hvernig getum við byggt jafn­rétt og fram­sýnt sam­fé­lag, þegar við getum ekki enn tryggt öryggi allra borg­ara?

Tökum nú saman hönd­um, hægri og vinstri, konur og karlar og við öll þar á milli, og sköpum saman sam­fé­lag sem við erum stolt af, sam­fé­lag sem sam­tryggir okkur öll, ekki bara sum­a.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent