„Pólitískur óstöðugleiki kemur niður á okkur öllum“

Greiningardeild Arion banka fjallar um beinan og óbeinan kostnað af tíðum stjórnarskiptum og pólitískum óstöðugleika í færslu sinni í dag.

Pólitískur óstöðugleiki hefur í för með sér bæði beinan og óbeinan kostnað fyrir samfélagið.
Pólitískur óstöðugleiki hefur í för með sér bæði beinan og óbeinan kostnað fyrir samfélagið.
Auglýsing

Það kostar háar fjár­hæðir að halda Alþing­is­kosn­ingar oft. Af tíðum stjórn­ar­skipt­um, kosn­ingum og óstöð­ugu stjórn­ar­fari hlýst bæði beinn og óbeinn kostn­aður fyrir þjóð­fé­lag­ið.

Grein­ing­ar­deild Arion banka fjallar um þetta í færslu á vef bank­ans í dag.

­Kostn­aður við að halda kosn­ingar í ár er tal­inn vera að minnsta kosti 350 millj­ónir króna, eða því sem nemur mán­að­ar­launum 619 rík­is­starfs­manna.

Þá er ótalið að í fjár­auka­lögum í fyrra var gert ráð fyrir 121 milljón krónum í bið­laun og annan kostnað vegna frá­far­andi þing­manna. Grein­inga­deildin bendir þó að sá kostn­aður sé eflaust lægri nú. „Þá var gert ráð fyrir 47 millj­ónum króna í ýmis útgjöld vegna bún­aðar fyrir nýja þing­menn og stand­setn­ingu á hús­næði svo eitt­hvað sé nefn­t,“ segir færslu grein­ing­ar­deild­ar­inn­ar.

Óbeinn kostn­aður við óstöðugt stjórn­ar­far

Starfs­menn grein­ing­ar­deild­ar­innar velta einnig fyrir sér óbeinum kostn­aði við tíð stjórn­ar­skipti, kosn­ingar og óvæntar vend­ingar í heimi stjórn­mál­anna.

„Þegar mikil tíð­indi verða í sam­fé­lag­inu hóp­ast lands­menn gjarnan fyrir framan sjón­varps­skjái, end­ur­hlaða frétta­síður í gríð og erg, skegg­ræða lands­málin við vinnu­fé­laga o.s.frv,“ segir á vef Arion banka.

Auglýsing

„Það er þó hugs­an­legt að skert athygli vinn­andi fólks vegna stórra tíð­inda, umfram það sem góðu hófi gegn­ir, feli í sér tap­aða fram­leiðslu fyrir hag­kerf­ið. Hversu mikið treystum við okkur ekki til að full­yrða nokkuð um en til þess að hægt sé að gera sér í hug­ar­lund um hver áhrifin eru höfum við áætlað tap þjóð­ar­bús­ins miðað við með­al­laun ann­ars vegar og verga lands­fram­leiðslu hins vegar að gefnu vinnu­tapi hvers vinn­andi manns á Íslandi. Ljóst er að jafn­vel þó með­al­starfs­maður tapi athygl­inni í korter hleypur kostn­að­ur­inn á hund­ruðum millj­óna króna.“

Póli­tískur óstöð­ug­leiki er dýr­keypt­ur, ef miðað er við hag­rænar sam­an­burð­ar­rann­sóknir á þessu sviði. Skortur á stefnu og stöð­ug­leika fælir til dæmis bæði inn­lenda og erlenda fjár­fest­ingu og dregur úr hag­vexti til lengri tíma. Bank­inn bendir á að óvissa hafi sést glögg­lega á fjár­mála­mörk­uðum í kjöl­far stjórn­ar­slita. „Þar með getur áfram­hald­andi póli­tísk óvissa, óstöð­ug­leiki og stefnu­leysi var­an­lega rýrt lífs­kjör á Ísland­i.“

Sé litið til Ítal­íu, frið­sæls ríkis í Evr­ópu þar sem óstöðugt stjórn­mála­á­stand hefur ríkt um langt skeið, kemur í ljós að tíð stjórn­ar­skipti þar hafa orðið á sama tíma og hag­kerfið hefur staðið í stað.

*Nokkuð víð skilgreining á ríkisstjórnarskiptum. T.d. telst það hér sem ríkisstjórnarskipti þegar Geir H. Haarde tók við Halldóri Ásgrímssyni sem forsætisráðherra árið 2006.

„Að hve miklu leyti óstöð­ug­leiki í stjórn­málum er þar söku­dólg­ur­inn skal ekki segja, en það er nokkuð ljóst að óstöðugt stjórn­ar­far hefur ekki hjálpað efna­hags­líf­inu á Ítal­íu. Lík­legt er að sama muni eiga við hér á landi ef þró­unin síð­ustu miss­eri er það sem koma skal.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent