50 störf hjá Össuri frá Íslandi til Mexíkó

Danskur hlutabréfagreinandi segir hlutabréfaverð í Össu yfirverðlögð í augnablikinu. Hins vegar sé nýsköpunarstarf og vöruþróun hjá fyrirtækinu framúrskarandi.

Össur stoðtæki
Auglýsing

Grein­andi hjá Carnagie grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu í Dan­mörku fjallar um Össur í grein­ingu sinni, og nefnir þar að til­kynnt hafi verið um fluttn­ing á 50 starfs­gildum frá Íslandi til Mexíkó, þar sem Össur er með fram­leiðslu. Er þetta sagt gert til að draga úr kostn­aði.

Jafn­framt er tekið fram að ekki standi til að flytja fleiri störf á milli starfs­stöðv­a. 

Grein­and­inn segir í grein­ingu sinni á Öss­uri, að eins og áður sé nýsköpun og vöru­þróun hjá fyr­ir­tæk­inu ein­stak­lega áhuga­verð, og tækninýj­ungar sem frá fyr­ir­tæk­inu komi séu heill­andi. Hins vegar sé það mat grein­anda að það geti verið erfitt fyrir Össur að finna kaup­endur fyrir margar af þessum vör­um. Það sé hluti af krefj­andi umhverfi fyr­ir­tæk­is­ins að finna leiðir til að við­hald­andi ásætt­an­legum vexti til fram­tíð­ar.

Auglýsing

Grein­ingin var send út til fjár­festa í gær, eftir mark­aðs­dag með stjórn­endum Öss­ur­ar.

Ráð­gjöfin til fjár­festa sem eiga bréf í félag­inu er sala (Sell), og eru bréfin í félag­inu sögð yfir­verð­lögð um 15 pró­sent, miðað við gengið á danska mark­aðn­um. Er þar sagt að verðið hafi verið 29,9 danskar krónur á hlut, en að mati grein­enda sé það 26 danskar krónur á hlut. 

Hér má sjá rekstrartölur, miðað við lokun markaða í dag, eins og þær birtust á vef Keldunnar.

Össur er tví­skráð á markað í Dan­mörku og Íslandi, en danskir hlut­hafar eru stærstu eig­end­ur, með meira en 60 pró­sent hluta­fjár. Sam­tals eru erlendir hlut­hafar með meira en tvo þriðju alls hluta­fjár, en danska félagið William Demt­ants (Ot­icon Founda­tion) er stærsti hlut­haf­inn, með tæp­lega 50 pró­sent hlut. 

Á und­an­förnum tólf mán­uðum hefur gengi bréfa í Össur hækkað um 9,83 pró­sent, en innan þessa árs hefur mark­aðsvirðið hækkað um 21 pró­sent. 

Sterkur efna­hagur

Rekstur félags­ins hefur verið traustur og efna­hag­ur­inn sömu­leið­is. Eigið fé félags­ins nam 467,8 millj­ónum Banda­ríkja­dala í lok ann­ars árs­fjórð­ungs, eða sem nemur rúm­lega 50 millj­örðum króna. Mark­aðsvirði félags­ins nam 205 millj­örðum króna, við lokun mark­aða í dag. Það er um 20 pró­sent af heild­ar­virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins.

Upp­gjör félags­ins eftir annan árs­fjórð­ung þessa árs var í takt við áætl­anir félags­ins, sam­kvæmt til­kynn­ingu til kaup­hall­ar. Sala nam 145 millj­ónum Banda­ríkja­dala (15,2 millj­örðum íslenskra króna) sam­an­borið við 139 millj­ónir Banda­ríkja­dala á öðrum árs­fjórð­ungi 2016 og nam sölu­vöxtur frá fyrra ári 6%, þar af 3% innri vöxt­ur, hvort tveggja mælt í stað­bund­inni mynt, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Hagn­aður nam 13 millj­ónum Banda­ríkja­dala, 1,4 millj­örðum íslenskra króna.

Sam­tals starfa 2.800 manns hjá Öss­uri í 20 lönd­um, en höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins eru á Íslandi og hafa alltaf verið frá stofn­un, árið 1971.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent