Seðlabankinn lækkar vexti um 0,25 prósent

Seðlabanki Íslands hefur lækkað meginvexti sína, oft nefndir stýrivextir, í 4,25 prósent.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum sem oft eru nefndir stýri­vext­ir, verða því 4,25 pró­sent.

Í frétt á vef Seðla­bank­ans um ákvörðun nefnd­ar­innar seg­ir: „Horfur eru á minni hag­vexti í ár en í fyrra, m.a. vegna þess að hægt hefur á vexti ferða­þjón­ustu. Hag­vöxtur verður þó áfram tölu­vert mik­ill. Vís­bend­ingar eru um að farið sé að draga úr spennu í þjóð­ar­bú­skapn­um.

Verð­bólga hefur hjaðnað nokkuð sl. tvo mán­uði og í sept­em­ber mæld­ist hún 1,4%. Mæli­kvarðar á und­ir­liggj­andi verð­bólgu eru enn lægri og hjaðn­andi. Gengi krón­unnar hefur lítið breyst frá síð­asta fundi nefnd­ar­inn­ar, eftir lækkun sl. sum­ar, og er 4,5% hærra en á sama tíma í fyrra. Mæli­kvarðar á verð­bólgu­vænt­ingar eru í nokkuð góðu sam­ræmi við verð­bólgu­mark­mið­ið. Geng­is­sveiflur und­an­far­inna mán­aða hafa haft til­tölu­lega lítil áhrif á verð­bólgu og skamm­vinn áhrif á verð­bólgu­vænt­ing­ar.

Auglýsing

Spenna í þjóð­ar­bú­skapnum kallar á pen­inga­legt aðhald svo að tryggja megi verð­stöð­ug­leika til með­al­langs tíma. Þróun verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga auk minnk­andi spennu benda þó til þess að raun­vextir bank­ans nægi við núver­andi aðstæður til þess að verð­bólga verði að jafn­aði við mark­mið. Aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar á kom­andi miss­erum mun ráð­ast af fram­vindu efna­hags­mála og annarri hag­stjórn.“

Verð­­bólga hefur verið undir 2,5 pró­­sent mark­miði Seðla­­banka Íslands í um 44 mán­uði sam­fleytt og bank­inn hefur því verið að lækka meg­in­vexti sína. Þetta hefur leitt til þess að nú bjóð­­ast í fyrsta sinn íbúða­lána­vextir á Íslandi sem eru undir þrjú pró­­sent, verð­­tryggt. Bestu kjörin eru sem stendur hjá Líf­eyr­is­­sjóði starfs­manna rík­is­ins þar sem verð­­tryggðir breyt­i­­legir vextir eru 2,77 pró­­sent. Verð­bólga er nú 1,4 pró­sent. Við­búið er að vextir hús­næð­is­lána geti lækkað enn meira í ljósi ákvörð­unar Pen­inga­stefnu­nefndar um að lækka vexti í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent