Líklegar tekjur af vatnsréttindum vegna Hvalárvirkjunar

Brúttóárstekjur VesturVerks ehf. yrðu á bilinu frá áttahundruð milljónum upp í einn og hálfan milljarð króna fyrsta árið. Þetta kemur fram í minnisblaði sem hagfræðideild Hí vann á dögunum.

Vatn Mynd: Bára Huld Beck
Auglýsing

Hag­fræði­deild Háskóla Íslands hefur nú reiknað lík­legar tekjur af vatns­rétt­indum vegna Hval­ár­virkj­unar í minn­is­blaði sem gefið var út þann 3. októ­ber síð­ast­lið­inn. Í því kemur fram að brúttó­á­rs­tekjur Vest­ur­Verks ehf. yrðu á bil­inu frá 800 millj­ónum upp í einn og hálfan millj­arð króna fyrsta árið. Leigu­greiðslur til eig­enda Ófeigs­fjarðar verða áætl­aðar stig­hækk­andi frá 16 til 29 millj­ónum á ári í 84 til 158 millj­ónir árlega eftir 20 ár.  

Gert er ráð fyrir að tekj­urnar hækki umfram almennt verð­lag með hækk­andi raf­magns­verði. Eftir 15 ár verði brúttó­á­rs­tekjur af virkj­un­inni á bil­inu frá einum millj­arði króna upp í allt að tveimur millj­örðum króna. 

Í minn­is­blað­inu kemur fram að HS orka eigi 70 pró­sent í Vest­ur­verki. Ver­kís hefur reiknað orku­getu Hval­ár­virkj­unar miðað við að Neðra Eyvind­ar­fjarð­ar­vatni sé veitt í Hvalár­vatn. Þannig sé áætlað að afl virkj­un­ar­innar verði um 55 MW og að 320 GWh verði fram­leiddar á ári. Erfitt sé að áætla lík­legt verð en árið 2016 var með­al­verð Lands­virkj­unar í heild­sölu 4,6 krónur á kílówatt­stund, án flutn­ings. 

Auglýsing

Með­al­verð til stór­iðju, með flutn­ingi, var all­miklu lægra, eða um 2,9 krónur miðað við með­al­gengi banda­ríkja­dals 2016. Árið 2016 voru tekjur Lands­virkj­unar af flutn­ingi um 15 pró­sent af summu tekna af flutn­ingi og raf­magns­sölu. Í því ljósi sé áætlað að tekjur af raf­magns­sölu til stór­iðju án flutn­ings séu um 2,4 krónur á kílówatt­stund­ina.

Í minn­is­blað­inu kemur ennig fram að HS Orka, móð­ur­fé­lag Vest­ur­verks, selji Norð­ur­áli raf­magn, en auk þess hafi fyr­ir­tækið skrifað undir við Thorsil, sem ætl­aði að reisa kís­il­ver í Helgu­vík. En ekk­ert liggi enn fyrir um hvert raf­magn frá Hval­ár­virkjun fer. Fram­kvæmda­stjóri Vest­ur­verks telji lík­legt að það nýt­ist allt á Vest­fjörð­um, ef áætl­anir um lax­eldi á Vest­fjörðum stand­ist.

Á vef­síðu Land­verndar segir að þau vinni að gerð athuga­semda um aug­lýsta til­lögu að breyttu aðal­skipu­lagi í Árnes­hreppi á Strönd­um, sem leyfa myndu 25 km af virkj­un­ar­vegum á óbyggðum víð­ernum Ófeigs­fjarð­ar­heið­ar. Kemur þar fram að Hval­ár­virkjun myndi hafa mikil og óaft­ur­kræft rask í för með sér og eyði­leggja víð­erni Vest­fjarða­kjálkans. 





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent