Lögbann sett á störf Loga Bergmann

Logi Bergmann má ekki hefja störf hjá Árvakri og Símanum líkt og hann hefur samið um. 365 miðlar töldu hann hafa brotið gegn skyldum ráðningarsamnings og ætla í mál.

Logi Bergmann
Auglýsing

Logi Berg­mann Eiðs­son má ekki hefja störf hjá Árvakri og Sím­anum líkt og hann hefur til­kynnt um að til stæði. Fyrr­ver­andi vinnu­veit­andi hans, 365 miðl­ar, hafa fengið lög­bann á störf Loga hjá þessum aðilum sem gildir til 31. októ­ber 2018. 365 mun í fram­hald­inu höfða stað­fest­ing­ar­mál á hendur Loga Berg­manni. Frá þessu er greint á Vísi.

Greint var frá því í síð­ustu viku að útvarps­­­­­stöðin K100, sem er í eigu Árvak­­­urs, út­­­gef­anda Morg­un­­­blaðs­ins og mbl.is, hef­ði náð samn­ing­um við Loga Berg­­­mann Eiðs­­son um dag­­­skrár­­­gerð á stöð­inni, auk þess sem hann mun starfa á rit­­­stjórn Morg­un­­­blaðs­ins. Á sama tíma var greint frá því að í und­ir­­­bún­­­ingi sé fram­­­leiðsla á inn­­­­­lendu sjón­­­varps­efni og dag­­­skrár­­­gerð með Loga Berg­­­manni, sem unn­in verður í sam­vinnu Árvak­­­urs og Sjón­­­varps Sím­ans. Ráðn­ing Loga átti að taka gildi strax. 

Í frétt Vísis segir hins vegar að í ráðn­inga­samn­ingi Loga sé kveðið á um 12 mán­aða upp­sagn­ar­frest og 12 mán­aða sam­keppn­is­bann að honum lokn­um.„365 var því nauð­ugur sá kostur að krefj­ast þess hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að lög­bann yrði lagt á störf Loga Berg­manns hjá þessum aðil­um. Af til­lit­semi við Loga var krafa 365 sú að lög­bann­inu yrði afmark­aður tími til næstu 12 mán­aða í stað 24 mán­aða, eins og 365 hefði getað gert kröfu um á grund­velli starfs­samn­ings Loga Berg­manns. 

Auglýsing
Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur nú fall­ist á kröfu 365 og sett lög­bann á störf Loga Berg­manns hjá Árvakri og Sím­anum til 31. októ­ber 2018. 365 mun í fram­hald­inu höfða stað­fest­ing­ar­mál á hendur Loga Berg­manni, eins og lög gera ráð fyrir.“

Leið­rétt­ing: 

Í upp­haf­legu frétt­inni kom fram að lög­bann hefði verið sett á störf Loga út mán­uð­inn. Hið rétta er að lög­bannið gildir út októ­ber­mánuð 2018. Þetta hefur nú verið leið­rétt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent