Samningaviðræður hafnar milli Refresco og PAI Partners

Stoðir, áður FL Group, eru stór eigandi að drykkjarvöruframleiðandanum Refresco. Íslenskir fjárfestar gætu hagnast verulega á hlutafjárkaupum í Refresco.

refresco-1.jpg
Auglýsing

Form­legar samn­inga­við­ræður milli hol­lenska drykkj­ar­vöru­fram­leið­and­ans Refresco, og PAI Partners, um kaup síð­ar­nefnda félags­ins á félag­inu, eru hafn­ar. Frá þessu var greint í til­kynn­ingu félags­ins í dag.

Refresco er risi á evr­ópskum drykkj­ar­vöru­mark­aði en starfs­menn eru 5.500 og árleg velta yfir tveimur millj­örðum evra, eða sem nemur um 250 millj­örðum króna.

Fjár­­­fest­inga­­fé­lag­ið PAI Partners SAS gerði 3. októ­ber síð­ast­lið­inn nýtt yfir­­­tökutil­­boð í  Refresco. Til­­­boðið hljóð­aði upp á 1,6 millj­­arða evra og var 14 pró­­sent hærra en fyrra yfir­­­tökutil­­boð, sem hafnað var í apríl síð­­ast­liðn­­­um. Miðað við gengi evru í dag er til­­­boðið upp á um 200 millj­­arða íslenskra króna.

Auglýsing

tærsti ein­staki hlut­hafi Refresco eru Stoð­ir, sem áður hétu FL Group. Verði yfir­­­tökutil­­boðið sam­­þykkt myndu Stoðir fá um 17,7 millj­­arða króna í sinn hlut. Hlut­­ur­inn var met­inn á 12,7 millj­­arða króna um síð­­­ustu ára­­mót í bókum Stoða og því ljóst að hlut­hafar Stoða munu fá mun meira en það fyrir hann verði til­­­boðið sam­­þykkt.

Refresco er eina eft­ir­stand­andi eign Stoða. Í vor áttu sér stað umtals­verð við­­skipti með hluti í félag­inu. Tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., eign­­uð­ust meiri­hluta í Stoð­­­um. Sam­an­lagt eiga þessi tvö félög 50,15 pró­­sent hlut.

Fyr­ir­liggj­andi upp­­lýs­ingar úr fyr­ir­tækja­­skrá benda til þess að félögin tvö hafi greitt 4,8 millj­­arða króna fyrir 48,73 pró­­sent hlut. Miðað við það verð má ætla að  mark­aðsvirði Stoða væri um tíu millj­­arðar króna þegar við­­skiptin áttu sér stað.

Miðað við yfir­­­tökutil­­boðið  virð­ist ljóst að hóp­­­ur­inn sem keypti hlut­inn í Stoðum snemma á þessu ári, í við­­­skiptum sem litlar upp­­­lýs­ingar fást um, hefur hagnað mjög vel á fjár­­­­­fest­ingu sinni. Og verði yfir­­­tökutil­­boð­inu tekið munu þeir geta leyst það fé út. Alls ætti hlutur þeirra að verða 8,9 millj­­arðar króna. Hóp­­ur­inn hefur því tæp­­lega tvö­­faldað fjár­­­fest­ingu sínu á örfáum mán­uðum miðað við þær tölur sem gefnar eru upp í gögnum sem skilað var inn til fyr­ir­tækja­­skrá­­ar.

Gamlir lyk­il­­­menn úr FL og stjórn­­­­­ar­­­menn TM

En hverjir eru í þessum hópi? S121 og S122 eru í eigu fjög­­­urra einka­hluta­­­fé­laga og eins skráðs félags, Trygg­inga­mið­­­stöðv­­­­­ar­inn­­­ar.  Fé­lögin fjögur heita Helg­­ar­­fell ehf., Esju­­­­borg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í Trygg­ing­­ar­mið­­stöð­inni. Og eig­endur þeirra voru margir hverjir lyk­il­­­menn í FLGroup á árunum fyrir hrun.

Esju­­­­borg er í 50 pró­­­­sent eigu félags sem heitir Jökla­­­­borg. Það er skráð í 100 pró­­­­sent eigu Jóhanns Arn­­­­ars Þór­­­­ar­ins­­­­son­­­­ar, for­­­­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­­­­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­­­­ur­inn í Esju­­­­borg er í eig Riverside Capi­­tal SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­­borg

Sam­­­­kvæmt Pana­ma­skjöl­unum er það félag í end­an­­­­legri eigu For­town Corp, félags skráð á Möltu. Eig­andi þess félags er Örvar Kærne­­sted. RiversideCapi­­tal á líka 2,63 pró­­­­sent hlut í Trygg­inga­mið­­­­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capi­­tal ehf. Hann situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­­­­stöðv­­­­­­­ar­inn­­­­ar. Örvar var yfir starf­­­­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og þar áður hjá Kaup­­­­þingi í níu ár.  Hann er nú umsvifa­­­­mik­ill fjár­­­­­­­fest­­­­ir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­­­­asta aðal­­­­fundi félags­­­­ins, sem fór fram 21. apríl síð­­­­ast­lið­inn.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent