Tryggingarfélag sagt hafa ráðlagt lögbann á frekari umfjöllun

Framkvæmdastjóri Glitnis Holdco, félags sem tók við eignum frá gamla Glitni, segir að félagið ætli sér að reyna að fá lögbannið á umfjöllun Stundarinnar staðfest fyrir dómstólum.

20150105_Stundin_352_cc.jpg
Auglýsing

Fram­kvæmda­stjóri Glitn­is HoldCo, Ingólfur Hauks­son, segir ákvörðun um að fara fram á lög­bann á frétta­flutn­ing ­Stund­ar­innar og Reykja­vík Medi­a hafa verið tekna í sam­ráði við trygg­inga­fé­lag ­eign­ar­halds­fé­lags­ins. 

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, en þar áréttar Ingólfur að Glitnir Holdco ætli sér að reyna að fá stað­fest­ingu á lög­bann­inu fyrir dómi. „Þetta var gert til þess að tryggja ­fé­lagið ef það koma fram ein­hverjar skaða­bóta­kröfur frá þeim sem mögu­lega eru í þessum gögn­um. Þetta eru ­upp­lýs­ingar sem við höfum og okk­ur skilst að þessi gögn hafi getað feng­ist keypt hjá ein­hverjum aðilum sem við þekkjum ekki til,“ segir Ingólf­ur, en trygg­ing­ar­fé­lagið er breskt, og vildi Ingólfur ekki gefa upp nafn þess.

Eins og kunn­ugt er, hefur lög­bann­inu verið kröft­ug­lega mót­mælt af hálfu bæði Stund­ar­innar og Reykja­vík Media, og hefur Sig­ríður Rut Júl­í­us­dóttir hrl., lög­maður Stund­ar­innar og Reykja­vík Media, sagt að lög­bannið sé alltof víð­tækt. „Ég er á þeirri skoðun að jafn­­vel þótt stað­­fest­ing­­ar­­málið muni tap­­ast fyrir lög­­­banns­beið­end­­ur, sem mér finnst per­­són­u­­lega lík­­­legra heldur en hitt, að þá erum við samt sem áður núna komin í alvar­­legt ástand. Þögg­unin á sér stað núna. Lög­­­bannið er á. Það á bara eftir að stað­­festa það hjá dóm­stól­­um. Lög­­­bannið var lagt á af full­­trúa fram­­kvæmda­­valds­ins. Dóm­stólar hafa ekki fengið þetta mat, heldur bara full­­trúi fram­­kvæmda­­valds­ins. Það er bara alvar­­legt. Ég lít svo á að núna séum við að upp­­lifa þögg­un,“ sagði Sig­ríður Rut í við­tali við sjón­varps­þátt Kjarn­ans, á Hring­braut.

Auglýsing

Lög­bannið nær til frek­ari umfjall­ana sem unnar eru upp úr gögnum frá Glitni, en umfjöllun Stund­ar­innar hefur verið um Bjarna Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og við­skipti hans, fjöl­skyldu og sam­starfs­manna hans, í aðdrag­anda hruns­ins.

Málið var meðal ann­ars rætt á fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í gær

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent