Bakkavör hættir við skráningu á markað í Bretlandi

Unnið hafði verið að skráningu Bakkavarar á markað í Bretlandi frá því snemma á þessu ári. Fyrirtækið er metið á um 210 milljarða króna. Nú hefur verið hætt við allt saman. Stærstu eigendur Bakkavarar eru Lýður og Ágúst Guðmundssynir.

Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir eru aðaleigendur Bakkavarar.
Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir eru aðaleigendur Bakkavarar.
Auglýsing

Bakka­vör hefur til­kynnt að fyr­ir­tækið sé hætt við skrán­ingu á markað í Bret­landi. Um þetta var til­kynnt í gær. Und­ir­bún­ingur að skrán­ing­unni hafði staðið yfir frá því að á fyrri hluta árs og hafði HSBC bank­inn unnið að henni ásamt Morgan Stanley. Barclays, Rabo­bank og Peel Hunt, ráð­gjafa­­fyr­ir­tæki með höf­uð­­stöðvar í London. Verð­mið­inn á Bakka­vör var tal­inn vera um tveir millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða um 210 millj­arðar króna.

Á­stæðan fyrir því að Bakka­vör er hætt við skrán­ingu er sögð vera óstöðugar mark­aðs­á­stæð­ur. Sam­kvæmt frétt Reuters um málið sögðu full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins að þessi ákvörðun hafi verið tekin þrátt fyrir að nægj­an­legur áhugi hafi verið hjá stofn­ana­fjár­festum fyrir þátt­töku í útboð­inu. Stjórn Bakka­varar hafi hins vegar ákveðið að skrán­ing myndi ekki þjóna hags­munum fyr­ir­tæk­is­ins né núver­andi hlut­hafa þess.

Eig­endur Bakka­varar í dag eru bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir ásamt fjár­fest­inga­sjóðnum Baupost Group. Bræð­urnir stofn­uðu Bakka­vör á Íslandi árið 1986 en misstu yfir­ráð yfir því til skamms tíma eftir banka­hrun.

Lýður steig niður úr starfi stjórn­ar­for­manns Bakka­varar í byrjun októ­ber. Sú ákvörðun var tekin í tengslum við fyr­ir­hug­aða skrán­ingu á mark­að, sem nú hefur verið hætt við. Ágúst er for­stjóri Bakka­var­ar.

Á meðal rík­ustu manna í Bret­landi

Í sumar greindi Kjarn­inn frá því að Lýður og Ágúst væru á meðal rík­ustu manna í Bret­landi sam­kvæmt árlegum lista sem birtur væri í The Sunday Times.

Auglýsing
Samkvæmt list­anum voru bræð­urnir metnir á um 150 millj­ónir punda í árs­lok 2016. Á núvirði eru það um 21 millj­arðar króna. Sú eign skilar þeim í 885 sæti á lista blaðs­ins.

Í umsögn þess segir að fyr­ir­tæki bræðranna, Bakka­vör, selji örbygju­mál­tíðir og ann­ars konar til­búna rétti til mat­vöru­versl­ana­keðja á borð Tesco og Sains­bury´s. Bræð­urnir hafi misst tökin á fyr­ir­tæk­inu í kjöl­far banka­hruns­ins á Íslandi en sam­komu­lag við banda­ríska vog­un­ar­sjóð­inn Baupost Group í fyrra hafi tryggt þeim yfir­ráð að nýju. Lýður og Ágúst eiga einnig hlut í Baupost Group, sam­kvæmt frá­sögn The Sunday Times.

Bakka­vör Group gerir reyndar margt fleira en að búa til örbylgju­mál­tíð­ir. Það er risa­vaxið fyr­ir­tæki sem fram­leiðir meira en fimm þús­und vörur í 42 verk­smiðjum í Bret­landi, Banda­ríkj­unum og í Kína. Tekjur Bakka­varar Group í fyrra voru 1.735 millj­ónir punda, um 222,3 millj­arðar króna á núvirði. Auk Tesco og Sains­bury´s selur fyr­ir­tækið vörur til keðja í Bret­landi á borð við M&S, Waitrose, Copo, Aldi, Morri­sons og ASDA. Í Banda­ríkjum og Kína selur Bakka­vör Group vörur til ris­vax­inna fyr­ir­tækja á borð við KFC, Pizza Hut, McDon­alds, Star­bucks og Costa.

Hagn­aður Bakka­vör Group vegna árs­ins 2016, eftir skatta og fjár­magns­gjöld, var tæp­lega 51 milljón pund, eða um sjö millj­arðar króna. Rekstr­ar­hagn­aður var 91 milljón pund, eða 12,6 millj­arðar króna. Fyr­ir­tækið er að öllu leyti í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústar og Baupost Group. Bræð­urnir eiga ráð­andi hlut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent