Fjöldi þeirra sem standa utan trúfélaga hefur tvöfaldast frá 2010

Tæpur þriðjungur landsmanna, alls 111 þúsund manns, standa nú utan þjóðkirkjunnar. Þar af eru tæplega 22 þúsund skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga.

Þeim sem eru meðlimir í ríkistrúnni fækkar ár frá ári.
Þeim sem eru meðlimir í ríkistrúnni fækkar ár frá ári.
Auglýsing

Fjöldi þeirra íbúa á Íslandi sem skráðir eru utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá því í byrjun árs 2010. Þá voru þeir sem voru skráðir utan slíkra félaga 10.336 tals­ins. Um síð­ustu ára­mót var sú tala komin upp í 20.500 og á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2017 bætt­ust 1.021 manns við sem stóðu utan trú- og líf­skoð­un­ar­fé­laga. Heild­ar­fjöldi þeirra í dag er því orð­inn 21.521. Alls eru 111.042 íbúar utan þjóð­kirkj­unn­ar, eða 32 pró­sent allra lands­manna.

Þetta má sjá úr tölum Hag­stofu Íslands og Þjóð­skrár um breyt­ingar á trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild.

Fækkun frá 2009

Umræddar tölur taka til allra skráðra ein­stak­linga hvort sem þeir eru með búsetu á Íslandi eða erlend­is. Erlendir rík­is­borg­arar sem skrá sig inn í kerfið hér­lendis flokk­ast sem ótil­greind­ir, en ekki sér­stak­lega skráðir í trú- eða líf­skoð­un­ar­fé­lög eða utan þeirra.

Auglýsing

Á sama tíma og fjöldi þeirra sem kjósa að standa utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga eykst ár frá ári þá fækkar sífellt þeim sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una. Árið 1992 voru 92,2 pró­­­­sent lands­­­­manna skráðir í hana. Sex árum síðar var hlut­fallið komið undir 90 pró­sent en fjöldi ein­stak­linga sem voru í þjóð­kirkj­unni hélt samt sem áður áfram að vaxa fram til árs­ins 2009. Þá náði fjöldi þeirra sem í hana eru skráðir hámarki, en þá voru 253.069 manns í Þjóð­kirkj­unni.  Það sama ár fór hins vegar hlut­fall þjóð­ar­innar sem fylgdi rík­is­trúnni í fyrsta sinn  undir 80 pró­sent.

Þeim sem standa utan þjóð­kirkju fjölgað um 80 þús­und

Frá árinu 2009 hefur fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­unni dreg­ist saman á hverju ein­asta ári. Um síð­ustu ára­mót voru þeir 236.481 tals­ins, sem þýddi að undir 70 pró­sent þjóð­ar­innar væri í kirkj­unni.

Það sem af er árinu 2017 hafa 1.261 gengið úr þjóð­kirkj­unni en 488 verið skráðir í hana. Þeim sem í kirkj­unni eru hefur því fækkað um 773 á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í ár, og eru skráðir með­limir því 235.708 tals­ins. Í lok sept­em­ber bjuggu 346.750 manns á Íslandi. Það þýðir því að 111.042 lands­menn standi utan þjóð­kirkj­unn­ar, eða 32 pró­sent þeirra. Um síð­ustu ald­ar­mót var fjöldi þeirra sem stóðu utan þjóð­kirkj­unnar 30.700. Þeim hefur því fjölgað um 80.342 síðan þá.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent