Páll: Alvarlegast að málið kunni að varða við mannréttindasáttmálann

Forstjóri Landspítalans segir aðalatriðið í Plastbarkamálinu svokallaða sé sjúklingurinn sem í örvæntingu vildi reyna að bjarga lífi sínu.

landspitalinn_16036563315_o.jpg
Auglýsing

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, segir í pistli á vef spít­al­ans, þar sem plast­barka­málið er til umfjöll­un­ar, að aðal­at­riði í mál­inu séu afdrif sjúk­lings­ins. Mik­il­væg­ast af öllu sé að læra af mál­inu. „Að öllu þessu sögðu verður að draga fram það sem mestu máli skipt­ir. Það var ekki þáttur Paolo Macchi­ar­ini eða Karol­inska, hvað þá hlutur Land­spít­ala, HÍ eða íslenskra með­ferð­ar­að­ila. Það mik­il­væg­asta eru örlög Andemariam Taeklesebet Bey­ne. Ungur fjöl­skyldu­faðir og náms­mað­ur, sjúk­lingur okkar og skjól­stæð­ingur Land­spít­ala, tók í örvænt­ingu sinni þátt í ólög­mætri til­raun með skelfi­legum afleið­ing­um. Vissu­lega fékk hann góða þjón­ustu hjá okkur fyrir og eftir hina afdrifa­ríku skurð­að­gerð í Sví­þjóð. Engu að síður brást svo margt sem ekki mátti bregð­ast og af virð­ingu við Andemariam og fjöl­skyldu hans ber okkur öllum skylda til að læra af þessu hörmu­lega máli. Það munum við ger­a,“ segir í Páll í pistli sín­um.

Tómas Guð­bjarts­son, pró­fessor og skurð­lækn­ir, hefur verið sendur í leyfi frá störf­um, meðan farið er yfir efn­is­at­riði skýrsl­unnar frá rann­sókn­ar­nefnd­inn­i. 

Hann hefur sjálfur sagt að hann hafi viljað gera allt sem hægt var að gera til að bjarga lífi sjúk­lings­ins, og það hafi verið það sem dreif hann áfram í störfum í mál­inu. Hann hafi tekið ákvarð­anir í góðri trú og lagt traust á Paolo Macchi­ar­ini, sem ekki reynd­ist trausts­ins verð­ur.

Auglýsing

Hann segir enn fremur að alvar­leg­asta álykt­unin nefnd­ar­inn­ar, sem skipuð var til að fara yfir málið og þátt Land­spít­al­ans og Háskóla Íslands, sé að málið kunni að varða við mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu. „Alvar­leg­asta ályktun nefnd­ar­innar hlýtur að vera sú að málið kunni að varða 2. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu. Sú grein fjallar um rétt okkar allra til vernd­unar lífs. Land­spít­ali er stofnun þar sem sjúk­ling­ur­inn er í önd­vegi. Við helgum okk­ur  varð­veislu lífs svo það er okkur öllum sem hér störfum gríð­ar­legt áfall að drag­ast inn í mál, með hvaða hætti sem það kann að hafa ver­ið, sem hefur ein­hvern snerti­flöt við ályktun um að sú helgi hafi verið rof­in,“ segir Páll.

Í pistl­inum segir Páll að þau mál sem varða vís­inda­siða­nefnd verði tekin upp við stjórn­völd, hlutum máls­ins verði vísað til sið­fræði­nefndar Land­spít­ala og að til skoð­unar sé til­laga nefnd­ar­innar um það með hvaða hætti sé unnt að koma ekkju sjúk­lings til aðstoðar vegna máls­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent