Milljarða niðurfærsla vegna United Silicon litar uppgjör Arion banka

Arion banki hefur fært niður lán upp á tæpa 5 milljarða á árinu, vegna United Silicon.

Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Auglýsing

Hagn­aður Arion banka á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2017 nam 10,4 millj­örðum króna sam­an­borið við 17,3 millj­arða króna á sama tíma­bili 2016. Mik­ill munur milli ára markast ekki síst af nið­ur­færslum á lánum vegna starf­semi United Sil­icon í Helgu­vík, en Arion banki hefur fært niður lán upp á 4,8 millj­arða á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og á útistand­andi skuld­bind­ingu upp á 5,4 millj­arða vegna verk­efn­is­ins. Þá hefur bank­inn ásamt líf­eyr­is­sjóð­um, sem settu fjár­magn í verk­efn­ið, tekið yfir eign­ar­haldið að mestu leyti.

Hösk­uldur Ólafs­son, banka­stjóri Arion banka, segir í til­kynn­ingu vegna upp­gjörs­ins, að þrátt fyrir allt þá sé grunn­rekstur bank­ans traust­ur. „Fjár­hags­staða bank­ans er áfram sterk og eig­in­fjár­hlut­fall er 27,1%. Afkoman markast hins vegar tals­vert af nei­kvæðum áhrifum tengdum lán­veit­ingum til United Sil­icon og hluta­bréfa­eign í félag­inu. Arion banki hefur fært niður lán til félags­ins að hluta og hluta­bréfa­eign sína að fullu. Það er um ár síðan verk­smiðja United Sil­icon var gang­sett og fljót­lega kom í ljós að óreiða var á starf­semi félags­ins. Nú liggur jafn­framt fyrir að verk­smiðjan var ekki full­kláruð þegar hún var gang­sett. Arion banki hefur því þurft að koma að starf­semi félags­ins í æ rík­ari mæli og er í dag stærsti hlut­hafi þess. Nei­kvæð áhrif vegna United Sil­icon nema ríf­lega 2% af eigin fé bank­ans og nið­ur­færsla lána nemur innan við 0,4% af lána­bók bank­ans. Útistand­andi skuld­bind­ing nemur um 5,4 millj­örðum króna sem er um 0,5% af efna­hag bank­ans,“ segir Hösk­uld­ur.

Sé horft sér­stak­lega á þriðja árs­fjórð­ung þá var tap af rekstri Arion banka upp á 113 millj­ónir króna, og munar þar mest um nið­ur­færslu lána til United Sil­icon upp á 3,7 millj­arða króna.

Auglýsing

Eins og kunn­ugt er hefur gengið á ýmsu í starf­semi United Sil­icon en Umhverf­is­stofnun lét loka starf­sem­ina. Þá hefur fyrr­ver­andi for­stjóri félags­ins, Magnús Garð­ars­son, verið kærður til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna meintra brota í starf­semi félags­ins, og eru þau mál sem að honum snúa nú til rann­sókn­ar.

Heild­ar­eignir námu 1.144,9 millj­örðum króna í lok sept­em­ber sam­an­borið við 1.036,0 millj­arða króna í árs­lok 2016 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 221,5 millj­arði króna í lok sept­em­ber, sam­an­borið við 211,2 millj­arða króna í árs­lok 2016. 

Íslenska ríkið á 13 pró­sent hlut í bank­an­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent