Einstakt og spennuþrungið mál

Landsdómsmálið var pólitískt alveg inn að beini, enda var Alþingi ákærandi í málinu.

Geir H. Haarde og lögfræðingur hans Andri Andrason
Auglýsing

Mann­rétt­inda­­dóm­­stóll Evr­­ópu í Strass­­borg kveður upp dóm sinn í máli Geirs H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, gegn ís­­lenska rík­­inu í dag.

Málið höfð­aði Geir vegna þess að hann taldi málið höfðað á póli­tískum rótum og að mála­til­bún­aður hefði verið í vega­miklum þáttum gall­að­ur. Hann neit­aði stað­fast­lega sök og hafn­aði því með öllu, að hafa brotið af sér, eins og ákæra bar með sér.

Geir var einn ákærður í mál­in­u. 

Auglýsing

Geir var fund­inn sek­ur fyr­ir Lands­­dómi í apríl 2012 um að hafa í aðdrag­anda efna­hags­hruns­ins brotið gegn 17. grein stjórn­­­ar­­skrár­inn­ar þar sem kveðið er á um skyldu til að halda ráð­herra­fundi um mik­il­væg stjórn­­­ar­­mál­efni. Sýknað var í öllum vega­mestu atrið­un­um, meðal ann­ars þeim sem snéru að því hvers vegna Ices­ave reikn­ingar Lands­bank­ans voru ekki fluttir í dótt­ur­fé­lag.

Aðal­með­ferð í mál­inu fór fram 5. til 16. mars 2012 og voru 40 vitni kölluð fyrir lands­dóm í spennu­þrung­inni máls­með­ferð. Sig­ríður Frið­jóns­dótt­ir, rík­is­sak­sókn­ari, flutti málið fyrir hönd Alþingis og Andri Árna­son hrl. var verj­andi Geirs.

Allar helstu per­sónur sem stóðu í fram­varð­ar­sveit íslensku bank­anna og stjórn­mála, fyrir hrun­ið, komu fyrir dóm­inn og báru vitni um allt sem snéri að efn­is­at­riðum ákærunn­ar.

Kvört­un Geirs til dóm­stóls­ins sneri að því ákæra gegn hon­um hefði verið á póli­­tísk­um grund­velli, að gall­ar hefðu verið á mála­til­­bún­aði auk þess sem Lands­­dóm­ur hefði ekki verið sjálf­­stæður og hlut­­laus.

Dómur í mál­inu féll 23. apríl og kemur fram í honum yfir­grips­mikil yfir­ferð yfir tím­ann fyrir hrun, sem snýr að hruni banka­kerf­is­ins. Dóm­ur­inn er 415 blað­síður að lengd.



Málið dæmdur Markús Sig­ur­björns­son, for­seti Hæsta­rétt­ar, Ástríður Gríms­dótt­ir, Bene­dikt Boga­son, Bryn­hildur Fló­venz, Egg­ert Ósk­ars­son, Eiríkur Tóm­as­son, Fannar Jón­as­son, Garðar Gísla­son, Hlöðver Kjart­ans­son, Ingi­björg Bene­dikts­dótt­ir, Linda Rós Michaels­dótt­ir, Magnús Reynir Guð­munds­son, Sig­rún Magn­ús­dótt­ir, Viðar Már Matth­í­as­son og Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son.

Aðal­með­ferð í mál­inu fór fram í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu og var ekki heim­ilt að sýna beint frá máls­með­ferð­inni. Fjöl­miðlar lýstu því sem fram fór með hjálp Twitter og vef­frétta, og voru beinar útsend­ingar frá vett­vangi alla dag­ana sem málið fór fram. Mik­ill áhugi var á mál­inu erlendis frá, og komu margir erlendir fjöl­miðlar til lands­ins vegna máls­ins þegar það hóf­st, og fylgd­ust með fram­gangi þess. 

Eftir að dómur féll í mál­inu ávarp­aði Geir við­stadda stutt­lega og sagð­ist ósáttur við að hafa verið fund­inn sekur um það atriði sem sú nið­ur­staða byggði á. Hann fagn­aði því að vera sak­laus af meg­in­at­riðum máls­ins, og sagði málið allt nið­ur­læg­ingu fyrir stjórn­málin á Íslandi, þar sem um póli­tísk rétt­ar­höld væri að ræða. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent