Stjórnarformaður Frjálsa: United Silicon verkefnið „áfall“

Formaður stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðisins segir að tapa af fjárfestingu í verksmiðju United Silicon sé áfall. Sjóðurinn hafi staðið vel að málum og ávöxtun gengið vel.

Úr kísilverinu. Mynd: United Silicon
Auglýsing

For­maður stjórnar Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins, Ásgeir Thorodd­sen, segir í grein í Morg­un­blað­inu í dag, að tap sjóðs­ins vegna kís­il­verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík sé „áfall“ fyrir stjórn­ina. Hann segir að sjóð­ur­inn hafi hins vegar ávaxtað eignir vel á und­an­förnum árum, og að sjóð­fé­lag­ar, sem eru 55 þús­und tals­ins, verði að horfa á heild­ar­mynd­ina. Stundum geti orðið tap af fjár­fest­ing­um, en yfir heild­ina þurfi sjóð­ur­inn að ná mark­miðum um góða ávöxt­un, og það hafi tek­ist hjá Frjálsa. Rekstur sjóðs­ins er í höndum Arion banka, sam­kvæmt sér­stökum samn­ingi þar um, og hefur það verið gagn­rýnt, að sjóð­ur­inn hafi fjár­fest með bank­anum í verk­efn­inu í Helgu­vík. Ásgeir segir reynsl­una af rekstri Arion banka góða.

„Þetta er að sjálf­sögðu áfall ­fyrir stjórn sjóðs­ins og sér­stak­lega ber að harma þau óþæg­indi sem verk­smiðjan hefur valdið íbúum í Reykja­nes­bæ,“ segir Ásgeir í grein sinni, og segir í loka­orðum að þrátt fyrir tap af fjár­fest­ingu sjóðs­ins í Helgu­vík verði ávöxt­unin góð á þessu ári. „Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur skil­að ­góðri ávöxtun á árinu 2017. Nafn- ­á­vöxtun hinna mis­mun­andi fjár­fest­ing­ar­leiða ­sjóðs­ins það sem af er ár­inu, að teknu til­liti til þess að fjár­fest­ing í United Sil­icon tapist, er á bil­inu 6,3% - 6,8%. Það sem skiptir þó enn meira máli er að ávöxtun til­ ­lengri tíma sé góð og hjá sjóðnum er hún 8,9% - 9,2% á sama grunni sl. 15 ár. Sjóð­fé­lagar skoða heild­ar­mynd­ina en ekki ein­staka þætti þegar þeir á­kveða að treysta Frjálsa líf­eyr­is­sjóðn­um ­fyrir sparn­aði sín­um,“ segir Ásgeir.

Útlit er fyrir að United Sil­icon fari í gjald­þrot með til­heyr­andi tapi fyrir hlut­hafa og kröfu­hafa, en Arion banki hefur á þessu ári þegar afskrifað 4,8 millj­arða króna vegna verk­efn­is­ins. 

Auglýsing

Bank­inn hefur að mestu tekið yfir hlutafé en útistand­andi skuld­bind­ingar nema ennþá 5,4 millj­örð­um, sam­kvæmt síð­asta birta upp­gjöri bank­ans. 

United Sil­icon er nú í greiðslu­stöðvun en sá tími rennur út í des­em­ber. Arion banki hefur ábyrgst rekst­ur­inn á greiðslu­stöðv­un­ar­tím­anum en hann hefur borgað um 200 millj­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­stöðv­un­ar­tím­inn hófst í ágúst.

Ljóst er nú að marga millj­arða kostar að ljúka upp­bygg­ingu verk­smiðj­unnar - sem var ekki til­búin þegar hún var gang­sett - og koma henni í gang á nýjan leik, ef það fæst til þess leyfi, en Umhverf­is­stofnun lét loka verk­smiðj­unni, meðal ann­ars vegna kvart­ana íbúa í nærum­hverfi yfir meng­un.

Fyrr­ver­andi for­stjóri og for­sprakki United Sil­icon, Magnús Garð­ar­son, hefur verið kærður til emb­ættis Hér­aðs­sak­sókn­ara. Stjórn United Sil­icon gerði það í sam­ráði við lög­­­mann félags­­ins og aðstoð­­ar­­mann í greiðslu­­stöðv­un, og send kæru til Hér­aðs­sak­sókn­ara um mög­u­­lega refsi­verða hátt­­semi Magn­ús­ar. Í til­­kynn­ingu segir að kæran byggi á „grun um stór­­felld auð­g­un­­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014 og er lögð fram í sam­ráði við aðra hags­muna­að­ila. Upp­­lýs­ing­­arnar sem nú koma fram eru afrakstur af vinnu við end­­ur­­skipu­lagn­ingu félags­­ins sem leidd hefur verið af nýrri stjórn sem tók við í febr­­ú­­ar. Hinn grun­aði hefur enga aðkomu haft að rekstri eða stjórnun félags­­ins síðan í mars. Stjórn félags­­ins mun vinna með yfir­­völdum að rann­­sókn máls­ins svo að upp­­lýsa megi það sem fyrst.“ Eru upp­hæðir sagðar hlaupa hund­ruð millj­óna króna.

Magnús hefur sjálfur neitað alfarið sök.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent