Segir lög um útboðsskyldu ekki hafa verið í gildi

Stjórnarformaður Lindarhvols, dótturfélags íslenska ríkisins, svaraði fyrirspurn Kjarnans er varðar umfangsmikla eignaumsýslu félagsins.

peningar
Auglýsing

Þór­hallur Ara­son, stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols, dótt­ur­fé­lags íslenska rík­is­ins sem tók við eignum frá slita­búum föllnu bank­anna, telur að lög um opin­ber inn­kaup hafi ekki verið brotin þegar félagið gerði samn­ing við lög­manns­stof­una Íslög, sem Steinar Þór Guð­geirs­son hrl. á, á vor­mán­uðum í fyrra.

Hann segir að þrátt fyrir að lög um opin­ber inn­kaup geri ráð fyrir að bjóða eigi út þjón­ustu sem sé yfir rúm­lega 15 millj­ónum króna, þá hafi samn­ing­ur­inn milli Lind­ar­hvols og Íslaga verið gerður á gild­is­tíma eldri laga, en ný lög tóku gildi nokkrum mán­uðum eftir að samn­ing­ur­inn var gerður milli Lind­ar­hvols og Íslaga. 

Lögin tóku gildi í októ­ber 2016, en sam­ing­ur­inn var gerður í apr­íl, sam­kvæmt svari Þór­halls við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Auglýsing

Fyr­ir­spurnin til Þór­halls, vegna fyrr­nefndra atriða, var eft­ir­far­andi: Í ljósi þess að lögin sem starf­semi Lind­ar­hvols byggir á, taka mið af því að stjórn­sýslu­lögin gildi um félag­ið, hefði þá ekki þurft að bjóða út þjón­ust­una sem samið var um við Íslög? 40 millj­ónir er tölu­vert fyrir ofan við­miðið um útboð (rúm­lega 15).

Svarið frá Þór­halli, vegna þess­arar fyr­ir­spurnar var eft­ir­far­andi: „Samn­ing­ur­inn var gerður á gild­is­tíma eldri laga um opin­ber inn­kaup en ný lög tóku gildi í lok októ­ber 2016. Lögin byggj­ast á Evr­óputil­skipun um sama efni og þegar kom að kaupum á þjón­ustu hafði það þýð­ingu fyrir fyr­ir­komu­lag opin­berra inn­kaupa hvort þjón­ustan sem keypt var tald­ist vera "A"- eða "B"-­þjón­usta. Skv. 21 gr. þágild­anda laga voru inn­kaup á B-þjón­ustu ekki útboðs­skyld og var kaup á lög­fræði­ráð­gjöf skil­greind sem B-þjón­usta,“ sagði í svar­inu.

Eins og greint hefur verið frá, og fram kom í árs­reikn­ingi Lind­ar­hvols fyrir árið í fyrra, þá fékk lög­manns­stofan Íslög 40 millj­ónir króna á átta mán­aða tíma­bili í fyrra, eða um 5 millj­ónir króna á mán­uði, fyrir að sinna þjón­ustu sem Lind­ar­hvoll keypti.

Steinar Þór var með pró­kúru fyrir Lind­ar­hvol, en að sögn Þór­halls fékk hann ekki pró­kúru hjá félag­inu fyrr en eftir að samn­ing­ur­inn milli Lind­ar­hvols og Íslaga var gerð­ur.

Hefur Þór­hallur svarað því til, að samn­ing­ur­inn við Íslög hafi verið gerður til að tryggja „sam­fellu“ við vinnu sem snýr að umsýslu eigna sem komu í fang rík­is­ins eftir fall bank­anna. Fyrst til Seðla­banka Íslands, og síðan til rík­is­ins.

Sveinn Ara­­son Rík­­is­end­­ur­­skoð­andi lýsti sig van­hæfan til að end­­ur­­skoða árs­­reikn­ing Lind­­ar­hvols. Félagið var stofnað 15. apríl í fyrra og heldur á tug­millj­­arða eignum fyrir hönd rík­­is­ins.

Ástæðan fyrir því að Sveinn ann­að­ist ekki end­­ur­­skoðun árs­­reikn­inga Lind­­ar­hvols var sú að bróðir hans, fyrr­nefndur Þór­hall­ur, er stjórn­­­ar­­for­­maður Lind­­ar­hvols, eins og áður sagði.

Vinnan við end­­ur­­skoðun árs­­reikn­ings félags­­ins tafð­ist nokkuð vegna þessa, en Sig­­urður Þórð­­ar­­son, fyrr­ver­andi Rík­­is­end­­ur­­skoð­andi, var feng­inn í það að ann­­ast end­­ur­­skoðun árs­­reikn­ings­ins.

Í fang rík­­­­is­ins, eftir upp­­­­­gjör slita­­­búa föllnu bank­anna, komu eignir upp á 384,3 millj­­­­arða króna, mest mun­aði þar um 95 pró­­­­sent eign­­­­ar­hlut í Íslands­­­­­­­banka og veð­skulda­bréf og afkomu­­­­skipta­­­­samn­ing vegna Arion banka, upp á sam­tals ríf­­­­lega 105 millj­­­­arða króna.

Aðrar eign­ir, þar á meðal hluta­fjár­­­­­­­eign­ir, lán og aðrar eign­ir, nema tæp­­­­lega 100 millj­­­­örðum króna. Allt laust fé sem borist hefur félag­inu rennur inn á reikn­ing félags­­­­ins hjá Seðla­­­­banka Íslands, sam­­­kvæmt grein­­­ar­­­gerð sem skilað var til Alþing­is.

Í grein­­­­ar­­­­gerð­inni segir að sam­tals hafi um 140 millj­­­­arðar króna runnið inn á reikn­ing­inn í Seðla­­­­bank­­­­anum frá því árið 2016. „Frá því í febr­­­­úar 2017 og fram til ágúst­loka hafa greiðslur inn á stöð­ug­­­­leik­a­­­­reikn­ing­inn numið 56.448 millj­­­­ónum króna. Staðan á reikn­ingnum þann 3. febr­­­­úar var 6.641 milljón króna. Alls hefur 58.700 millj­­­­ónum verið ráð­stafað til nið­­­­ur­greiðslu skulda á tíma­bil­inu, skulda­bréf sem rík­­­­is­­­­sjóður gaf út til end­­­­ur­fjár­­­­­­­mögn­unar Seðla­­­­banka Íslands var greitt upp að fullu en eft­ir­­­­stöðvar þess námu 28,5 ma.kr. Þá voru um 30 ma.kr. ráð­stafað til upp­­­­­­­kaupa á skulda­bréfa­­­­flokknum RIKH 18 sem rík­­­­is­­­­sjóður gaf út til end­­­­ur­fjár­­­­­­­mögn­unar fjár­­­­­­­mála­­­­stofn­ana. Sam­an­­­­dregið frá því að fram­­­­sal stöð­ug­­­­leika­­­eign­anna átti sér stað í upp­­­­hafi árs 2016 og til og með 25. ágúst 2017 hafa greiðslur inn á stöð­ug­­­­leik­a­­­­reikn­ing­inn ásamt greiðslum inn á reikn­inga dótt­­­­ur­­­­fé­laga numið sam­tals ríf­­­­lega 140 millj­­örðum króna. Þar af var 17 millj­­örðum króna ráð­stafað til rík­­­­is­­­­sjóðs til að mæta töp­uðum banka­skatti og um 120 millj­­örðum króna hefur verið ráð­stafað til nið­­­ur­greiðslu skulda,“ segir í grein­­­­ar­­­­gerð­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent