Kolbrún búin að segja upp sem ritstjóri DV

Kristjón Kormákur Guðjónsson hefur verið ráðinn aðalritstjóri DV og DV.is.

7DM_0805_raw_2405.JPG
Auglýsing

Kol­brún Berg­þórs­dóttir hefur sagt upp störfum sem rit­stjóri DV. Þetta kemur fram á Vísi. Þar er haft eftir Kol­brúnu að hún hætti í góðu en sé ósátt við skipu­lags­breyt­ingar sem kynntar voru hjá DV fyrir helg­i. Sig­ur­vin Ólafs­son hefur einnig verið rit­stjóri DV und­an­farna mán­uði. Hann vildi ekki tjá sig um stöðu mála þegar Vísir náði sam­bandi við hann.

­Skipu­lags­breyt­ing­arnar sem Kol­brún minnt­ist á voru þær að Krist­jón Kor­mákur Guð­jóns­son hefði verið ráð­inn aðal­rit­stjóri DV, DV.is og tengdra miðla. 

Greint var frá því í júní 2017 að Sig­­ur­vin, sem hafði verið fram­­kvæmda­­stjóri DV um nokk­­urt skeið, hefði tekið við starfi rit­­stjóra hjá mið­l­in­um en að Kol­brún yrði áfram rit­­stjóri við hlið hans. Hún tók við þeirri stöðu í árs­lok 2014.

Frjáls fjöl­miðlun keypti í byrjun sept­em­ber flesta fjöl­mið­l­a Pressu­­sam­­stæð­unn­­ar: DV, DV.is, Eyj­una, Press­una, Bleikt, Birtu, Dokt­or.is, 433.is og sjón­­varps­­stöð­ina ÍNN. Skömmu síðar var Karl Garð­­ar­s­­son, fyrr­ver­andi þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, ráð­inn sem fram­­kvæmda­­stjóri félags­ins. 

Auglýsing
Sam­kvæmt til­­kynn­ingu var kaup­verðið fyrir þessa miðla Press­unn­ar á sjötta hund­rað millj­­­ónir króna. Greitt var fyrir mið­l­anna með reiðufé auk yfir­­­­­töku skulda. Ekki hefur verið opin­berað hverjir eig­endur Frjálsrar fjöl­mið­l­unar en lög­­­mað­­ur­inn Sig­­urður G. Guð­jóns­­son er for­svar­s­­maður þess. 

Stærsti hlut­hafi Pressunn­ar, Fjár­fest­inga­fé­lagið Dal­ur­inn, greindi frá því í til­kynn­ingu 24. nóv­em­ber að kaup­verðið hefði verið greitt „með yfir­­­töku á kröfu frá­­far­andi stjórn­­­ar­­for­­manns á félagið að fjár­­hæð 80.000.000 króna auk yfir­­­töku á hand­völdum skuldum félag­anna þar sem Björn Ingi Hrafns­­son er í per­­són­u­­legum ábyrgð­­um. Þetta ásamt öðrum atrið­um, sem nánar verður gerð grein fyrir síð­­­ar, hefur gert það að verkum að legið hefur fyrir grunur um að ekki hafi ein­ungis verið mis­­farið með fjár­­muni félag­anna heldur hafi kröf­u­höfum félag­anna einnig verið mis­­munað í bága við lög.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent