Skoða að leggja á sykurskatt en lækka eldsneytisskatt

Bjarni Benediktsson segir að skattur á eldsneyti verði endurskoðaður. Svandís Svavarsdóttir er opin fyrir því að leggja á sykurskatt í forvarnarskyni.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­­mála­ráð­herra, segir að álag á elds­neyti verði end­ur­skoð­að. Sú breyt­ing muni koma fram í nýju fjár­laga­frum­varpi sem verður til­búið til fram­lagn­ingar á mið­viku­dag í næstu viku. Hann segir að ákveðið mark verði sett á tekju- og gjalda­hlið frum­varps­ins. Þetta kemur fram íMorg­un­blað­inu.

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra greinir svo frá því í Frétta­blað­inu að hún sé opin fyrir því að taka upp svo­kall­aðan syk­ur­skatt að nýju. Í frétt blaðs­ins er greint frá því að spreng­ing hafi orðið í dauðs­föllum af völdum syk­ur­sýki 2 und­an­farin ár. Á tutt­ugu ára tíma­bili lét­ust 137 ein­stak­lingar hér á landi af völdum syk­ur­sýki af teg­und 2.

Syk­ur­skattur hefur áður verið í lögum á Íslandi. Álagn­ing syk­­ur­skatts­ins tók þá gildi 1. mars 2013 og var kynntur sem skref í átt­ina að því að við­­ur­­kenna þann heilsu­far­s­skaða sem hlýst af slæmu mat­­ara­æði, en mat­ar­­æði er stærsti ein­staki áhætt­u­þáttur heilsu­far­s­skaða Íslend­inga sam­­kvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­­stofn­un­inni (WHO). Syk­ur­skatt­ur­inn var hins vegar afnum­inn með lögum sem sam­þykkt voru árið 2014.

Auglýsing

Við það til­efni sagði Bjarni Bene­dikts­son, sem þá var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, að syk­ur­skatt­ur­inn gæfi þrjá millj­arða í rík­is­kass­ann en næði ekki þeim lýð­heilsu­legu mark­miðum sem að hefði verið stefnt. Þess vegna væri hann afnum­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent