United Silicon fær áframhaldandi greiðslustöðvun til 22. janúar

United Silicon fékk greiðslustöðvun sína framlengda í dag. Arion banki greiðir um 200 milljónir króna á mánuði vegna rekstursins og hefur þegar afskrifað 4,8 milljarða króna.

United Silicon ágúst 2017
Auglýsing

Hér­aðs­dómur Reykja­nes sam­þykkti í dag að veita United Sil­icon áfram­hald­andi greiðslu­stöðvun til 22. jan­úar 2018. Fyrri greiðslu­stöðvun félags­ins rann út í dag. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá United Sil­icon var ákvörð­unin tekin á stjórn­ar­fundi félags­ins fyrir helgi og sam­þykkti Hér­aðs­dómur Reykja­nes þá beiðni í dag. 

United Sil­icon rekur kís­­­il­­­málm­­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­­stöðvun 14. ágúst síð­­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­­leikar í rekstri kís­­­il­­­málm­­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­­leiðslu í nóv­­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­­ur­­­tek­inna bil­ana í bún­­­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Gerð­­­ar­­­dómur í deilu félags­ins við ÍAV hf., sem féll fyrr á þessu ári, jók  enn á óvissu félags­ins. Sam­­­kvæmt honum þarf United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­­­arð króna.

Marga millj­­arða kostar að ljúka upp­­­bygg­ingu verk­smiðj­unnar - sem var ekki til­­­búin þegar hún var gang­­sett - og koma henni í gang á nýjan leik, ef það fæst til þess leyfi, en Umhverf­is­­stofnun lét loka verk­smiðj­unni, meðal ann­­ars vegna kvart­ana íbúa í nærum­hverfi yfir meng­un.

Í svari frá United Sil­icon sem barst Kjarn­anum í dag vegna fyr­ir­spurnar um fram­leng­ingu greiðslu­stöðv­un­ar­innar segir að á því tíma­bili sem liðið er frá því að hún var sam­þykkt upp­haf­lega hafi verið lögð mikil vinna verið lögð í nauð­syn­legar grein­ingar á starf­semi United Sil­icon og farið yfir leiðir til úrbóta. „Arion banki hefur fjár­magnað þá vinnu sem og aðra starf­semi félags­ins. Nið­ur­staða tækni­legra úttekta felur í sér umtals­verða fjár­fest­inga­þörf í starf­semi verk­smiðj­unn­ar. Þá hefur bók­halds­rann­sókn leitt í ljós meint fjár­muna­brot fyrr­ver­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Meint brot hafa verið kærð til hér­aðs­sak­sókn­ara og eru þau í rann­sókn þar. Um sex­tíu manns eru að störfum hjá verk­smiðj­unni en frá því fram­leiðsla var stöðvuð í byrjun sept­em­ber hefur starfs­fólkið meðal ann­ars sinnt við­haldi og tím­inn verið nýttur í að styrkja það í störf­um.“

Mikið tap Arion og líf­eyr­is­sjóða

United Sil­icon glímir við mikla rekstr­ar­erf­ið­leika og mikil óvissa ríkir um hvort félagið geti haldið áfram rekstri. Hlut­hafar og kröfu­hafar félags­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­hæðir vegna United Sil­icon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn hefur að mestu tekið yfir hlutafé en útistand­andi skuld­bind­ingar nema ennþá 5,4 millj­­örð­um, sam­­kvæmt síð­­asta birta upp­­­gjöri bank­ans. Arion banki hefur auk þess ábyrgst rekst­­ur­inn á greiðslu­­stöðv­­un­­ar­­tím­­anum en hann hefur borgað um 200 millj­­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­­stöðv­­un­­ar­­tím­inn hófst í ágúst.

Auglýsing
Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn, sem fjár­­­festi 1.178 millj­­ónum króna í United Sil­icon, hefur færð niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­ur­inn á í fyr­ir­tæk­inu um 90 pró­­sent. Um var­úð­­ar­n­ið­­ur­­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­launa­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­ur­­færslan einnig 90 pró­­sent­­um. Líf­eyr­is­­sjóð starfs­­manna Bún­­að­­ar­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­un­­ar­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­stöðvum hans í Borg­­ar­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Festa 875 millj­ónir króna í United Sil­icon. Hann hefur einnig fram­kvæmt var­úð­ar­nið­ur­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Í rann­sókn

Fyrr­ver­andi for­­stjóri og for­­sprakki United Sil­icon, Magnús Garð­ar­son, hefur verið kærður til emb­ættis Hér­­aðs­sak­­sókn­­ara. Stjórn United Sil­icon gerði það í sam­ráði við lög­­­­­mann félags­ins og aðstoð­­­ar­­­mann í greiðslu­­­stöðv­­un, og send kæru til Hér­­aðs­sak­­sókn­­ara um mög­u­­­lega refsi­verða hátt­­­semi Magn­ús­­ar.

Í til­­­kynn­ingu segir að kæran byggi á „grun um stór­­­felld auð­g­un­­­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014 og er lögð fram í sam­ráði við aðra hags­muna­að­ila. Upp­­­lýs­ing­­­arnar sem nú koma fram eru afrakstur af vinnu við end­­­ur­­­skipu­lagn­ingu félags­­­ins sem leidd hefur verið af nýrri stjórn sem tók við í febr­­­ú­­­ar. Hinn grun­aði hefur enga aðkomu haft að rekstri eða stjórnun félags­­­ins síðan í mars. Stjórn félags­­­ins mun vinna með yfir­­­völdum að rann­­­sókn máls­ins svo að upp­­­lýsa megi það sem fyrst.“ Eru upp­­hæðir sagðar hlaupa hund­ruð millj­­óna króna.

Magnús hefur sjálfur neitað alfarið sök.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent