Afsláttur af námslánum til að efla byggðir

Fyrirmyndin er sótt til Noregs.

Lilja Alfreðsdóttir
Auglýsing

Mennta­mála­ráð­herra, Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, hyggst kanna kosti þess að nýta náms­lána­kerfið til að styðja byggðir lands­ins og þannig hvetja fólk til að setj­ast að á svæðum sem ann­ars hafa átt í vök að verj­ast. 

Þetta kemur fram í við­tali við Lilju Dögg í Frétta­blað­inu í dag. „Þetta gengur út á að fólk ­sem býr og vinnur á svoköll­uð­u­m að­gerða­svæðum og er með náms­lán ­gæti sótt um afslátt af náms­lán­um,“ ­segir Lilja Dögg. 

Lilja vísar til reynslu Norð­manna af þess­ari leið þar sem fólk get­ur ­fengið tíu pró­senta lækkun á náms­lán­um ár­lega hafi það búið á til­greind­um ­svæðum í tólf mán­uð­i. „Þar hefur þessu úrræði verið bein­t inn á svæði þar sem skortur hef­ur verið á sér­fræði­mennt­uðu fólki,“ ­segir Lilja. Úrræðið hafi skilað tölu­verð­u­m ár­angri í Norð­ur­-Nor­eg­i og laðað til dæmis lækna og tækni­mennt­að ­fólk á strjál­býl svæð­i. „Í mörgum til­vikum hefur þetta ­fólk ílengst á svæð­inu eftir að náms­lán þess eru greidd að fullu,“ segir Lilja Dögg í við­tali við Frétta­blað­ið.

Auglýsing

Í stjórn­ar­sátt­mála Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins er fjallað um þessar hug­mynd­ir. Í honum segir meðal ann­ars: „Sókn­ar­á­ætl­anir lands­hlut­anna eru mik­il­vægt tæki til að reka byggða­stefnu á for­sendum heima­manna. Þær verða styrktar á kjör­tíma­bil­inu. Horft verður til byggða­að­gerða sem tíðkast í nágranna­lönd­unum en um leið verður svæð­is­bundin þekk­ing nýtt sem best. Skoð­aðir verða kostir þess að nýta náms­lána­kerfið og önnur kerfi sem hvata fyrir fólk til að setj­ast að í dreifðum byggð­um. Ráðu­neytum og stofn­unum verður falið að skil­greina störf og aug­lýsa þau án stað­setn­ingar eins og kostur er.“ 

Aðspurð um þau svæði sem mynd­u njóta þessa úrræðis segir Lilja að það ­gæti verið breyti­legt en um yrði að ræða svæði þar sem erfitt reyn­ist að halda uppi til­tek­inni þjón­ustu vegna skorts á sér­fræði­mennt­uðu fólki. 

Eins og fram kemur í stjórn­ar­sátt­mál­an­um kemur til greina að fleiri hvatar til lands­byggð­ar­bú­setu verð­i kynnt­ir. „Liður í þeirri end­ur­skoðun þarf að vera hvernig hvata við getum sett til að efla þekk­ing­ar­sam­fé­lagið úti á landi. En auð­vitað snýst þetta fyrst og ­síð­ast um inn­viða­upp­bygg­ingu um landið og þá þjón­ustu sem er í boð­i,“ ­segir Lilja Alfreðs­dóttir

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent