Nýjar siðareglur eiga að skerpa á heilindum í störfum hjá hinu opinbera

Ríkisstjórn hefur samþykkt endurskoðun siðareglna ráðherra og hyggst skipa starfshóp sem fer yfir endurskoðun á siðareglum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

Rík­is­stjórnin fjall­aði á fundi sínum í morgun um siða­reglur ráð­herra, en mark­miðið með end­ur­skoðun regln­anna verður að skerpa á hags­muna­skrán­ingu ráð­herra með það í huga að skýr aðskiln­aður verði milli almanna- og sér­hags­muna, auk þess sem skerpt verður á því hvernig megi inn­leiða „heil­indi“ í starfi hjá hinu opin­bera, í víð­ara sam­hengi.

Þetta herma heim­ildir Kjarn­ans, en rík­is­stjórnin til­kynnti um það í dag, að siða­reglur yrðu teknar til end­ur­skoð­un­ar.

Nú eru í gildi siða­reglur ráð­herra nr. 190/2017 og hafa þær ekki tekið miklum efn­is­legum breyt­ingum frá því þær voru fyrst gefnar út vorið 2011, að því er segir í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni.

Auglýsing

Ákveðið var á fund­inum að for­sæt­is­ráð­herra myndi kalla til utan­að­kom­andi sér­fræð­inga til ráð­gjafar „ekki ein­ungis varð­andi siða­reglur ráð­herra heldur einnig varð­andi heil­indi í opin­berum störfum í víð­ara sam­heng­i.“ 

Ráð­gert er að setja á fót starfs­hóp sem mun ráð­leggja og aðstoða við að ná fram eft­ir­far­andi þáttum úr stjórn­ar­sátt­mála: „Rík­is­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu. Einn þáttur í því er að yfir­fara reglur um hags­muna­skrán­ingu bæði ráð­herra og þing­manna með hlið­sjón af ábend­ingum og alþjóð­legum við­mið­um. Annar þáttur er breyt­ingar á lögum sem varða vernd upp­ljóstr­ara og umbætur í umhverfi stjórn­sýslu og við­skipta, meðal ann­ars í takt við ábend­ingar alþjóða­stofn­ana.“ 

Þá verður gætt að lög­bundnu sam­ráði við Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands, segir í til­kynn­ing­unni.

Í regl­unum er meðal ann­ars vikið að hags­muna­skrán­ingu með þessum orð­um:

„2. grein hags­muna­tengsl og hags­muna­á­rekstrar

1. Ráð­herra forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar og gætir þess að per­sónu­leg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Tak­ist honum ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.

2. Ráð­herra upp­lýsir um fjár­hags­leg hags­muna­tengsl eða önnur slík tengsl sem valdið geta hags­muna­á­rekstum með því að fylla út eyðu­blað á vegum skrif­stofu Alþing­is, sbr. reglur um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum alþing­is­manna og trún­að­ar­störfum utan þings. For­sæt­is­ráð­herra getur í sam­ráði við rík­is­stjórn ákveðið að kalla með skipu­lögðum hætti eftir frek­ari upp­lýs­ingum um hags­muna­tengsl ráð­herra sem birtar yrðu almenn­ingi.

3. Ráð­herra beitir sér fyrir því innan ráðu­neytis og þeirra stofn­ana sem undir það heyra að tekið sé á hags­muna­á­rekstrum strax og þeir koma upp og hann fær vit­neskju þar um. Þá skal hann beita sér fyrir því að starfs­fólk sé sér með­vitað um mögu­lega hags­muna­á­rekstra og leiðir til að koma í veg fyrir þá.“

Gert er ráð fyrir að starfs­hóp­ur­inn skili skýrslu til for­sæt­is­ráð­herra eigi síðar en 1. sept­em­ber 2018, og verði þá í kjöl­farið skerpt á áherslum sem eiga að tryggja skýran aðskilnað sér­hags­muna frá almanna­hags­munum innan rík­is­stjórn­ar­innar og hins opin­bera.

Rík­is­stjórnin mun stað­festa fyrir sitt leyti og starfa eftir fram­an­greindum siða­reglum ráð­herra á meðan unnið er að end­ur­skoðun sam­kvæmt fram­an­greindu, segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent