Ferðamenn strauja kortið næstum jafn mikið og fólk eyðir í íbúðir

Umfang kortaveltu ferðamanna á fyrstu átta mánuðum ársins slagar upp meðaltalsveltu á fasteignamarkaði höfuðborgarsvæðsins á mánuði. Áframhaldandi vöxtur í kortunum.

7DM_9653_raw_1783.JPG
Auglýsing

Korta­velta erlendra ferða­manna nam 188 millj­örðum króna á fyrstu átta mán­uðum árs­ins, eða sem nemur um 23,5 millj­örðum á mán­uði að með­al­tali. 

Þetta er lang­sam­lega mesta velta ferða­manna á Íslandi frá því að mæl­ingar á henni hófust, enda hefur vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni verið stöð­ug­ur. Gert er ráð fyrir að 2,3 millj­ónir manna heim­sæki Ísland á þessu ári, en til sam­an­burðar komu um 450 þús­und ferða­menn til lands­ins 2010. 

Frá þeim tíma hefur ferða­þjón­ustan marg­faldast, og sam­kvæmt flestum spám grein­enda er gert ráð fyrir áfram­hald­andi vext­i. 

Auglýsing

Eins og sést er mesta álagið yfir sumarið í ferðaþjónustunni, en aðrar árstíðir hafa unnið á. Mynd: Íslandsbanki.Veltan hefur auk­ist gríð­ar­lega hratt, og er vöxt­ur­inn án for­dæma í heim­in­um, sé litið til síð­ustu ára. Á tveimur árum hefur korta­veltan auk­ist um 63 pró­sent, miðað við töl­urnar sem Morg­un­blaðið greindi frá í morg­un. 

Til að setja hlut­ina í sam­hengi við grunn­stærðir í efna­hags­líf­inu þá hefur korta­velta ferða­manna verið á svip­uðu róli og heild­ar­velta fólks í fast­eigna­við­skiptum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þegar horft er til með­al­tals á mán­uð­i. 

WÁ und­an­förnum sex mán­uðum hefur með­al­tals­velta í fast­eigna­við­skiptum verið á bil­inu 6 til 7,1 millj­arður króna á viku, eða sem nemur um 24 til ríf­lega 28 millj­arða króna á mán­uði. Oft hef­ur  veltan líka verið minni en þetta, og því fyrir neðan með­al­tals korta­veltu ferða­manna í mán­uð­i. 

Þetta gefur góða vís­bend­ingu um hversu stór hluti af umfangi hag­kerf­is­ins hangir saman við eyðslu ferða­manna á land­inu.

Spár hafa gert ráð fyrir því að vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni haldi áfram á næstu árum, og að fjöldi ferða­manna á ári gæti farið upp fyrir þrjár millj­ónir á árunum 2019 eða 2020.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent