Frumkvæðið að mörg hundruð milljóna bónusum kom frá vogunarsjóði

Klakki ætlar að borga nokkrum lykilstarfsmönnum og stjórn allt að 550 milljónir í bónusa fyrir að selja eignir félagsins. Í tilkynningu kemur fram að greiðslurnar gætu orðið lægri og jafnvel engar.

lykillinn131217
Auglýsing

Frum­kvæðið að kaupauka­greiðslum til lyk­il­starfs­manna og stjórnar Klakka, sem geta numið allt að 550 millj­ónum króna, kom frá erlendum eig­endum félags­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Klakka.

Þar segir að það sé skilj­an­legt að svo stórar upp­hæðir eins og þarna sé um að tefla veki athygli og að spurt sé hver taki ákvörðun um þær. „Svarið við því er eig­endur félags­ins. Ríf­lega 80% hluta­fjár Klakka er, beint og óbeint, í eigu erlendra aðila og er frum­kvæðið að kaupauka­greiðsl­unum alfarið þeirra þó að stjórn hafi fjallað um útfærsl­una og að beiðni þeirra lagt hana fyrir hlut­hafa­fund til sam­þykkt­ar.

Þá skal minnt á að þær upp­hæðir sem fram hafa komið í fjöl­miðlum eru ekki end­an­legar heldur eru það hámarks­greiðslur vegna heild­ar­eigna Klakka sem koma aðeins til ef mjög hátt verð fæst fyrir Lyk­il. Greiðsl­urnar geta orðið mun lægri eða jafn­vel eng­ar. Sér­stök áhersla er á að kynna sölu­ferli Lyk­ils fyrir erlendum kaup­endum og eig­endur Klakka telja mik­il­vægt að allir sem að söl­unni komi hafi beina fjár­hags­lega hags­muni af því að sem allra hæst verð fáist fyrir félag­ið, eig­endum þess til hags­bóta.“

Auglýsing

Greint var frá því í morgun að stjórn­­endur og stjórn­­­ar­­menn Klakka, sem áður hét  Exista, og heldur utan um 100 pró­­senta hlut í eigna­­leig­u­­fyr­ir­tæk­inu Lykli, áður Lýs­ing, geta fengið sam­an­lagt um 550 millj­­ónir króna í bónus í tengslum við vænt­an­­lega sölu á Lykli og vegna ann­­arra eigna félags­­ins sem hafa verið seldar á síð­­­ustu árum.

Stærsti eig­andi  Klakka er banda­ríski vog­un­­ar­­sjóð­­ur­inn Dav­id­son Kempner en íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­ir, einkum LSR, Gildi, Líf­eyr­is­­sjóður versl­un­­ar­­manna og Birta, eiga einnig sam­tals um sex pró­­senta hlut í Klakka.

Full­trúi líf­eyr­i­s­jóða ekki við­staddur

Í Mark­aðn­um, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti,  segir að hlut­hafa­fundur Klakka hafi sam­­þykkt, síð­­ast­lið­inn mán­u­dag, til­­lögu að kaupauka­­kerfi sem lögð var fram af stjórn félags­­ins, sem nær til þriggja starfs­­manna Klakka og sex manna stjórnar félags­­ins,. Full­­trúi líf­eyr­is­­sjóð­anna var ekki við­staddur á fund­in­um, en Krist­ján B. Thor­lacius, hæsta­rétt­­ar­lög­­maður og einn stjórn­­­ar­­manna Klakka, hefur ver­ið studdur af sjóð­unum í stjórn félags­­ins en hann er á meðal þeirra sem bón­us­­kerfið nær til.

Auk Magn­úsar Schev­ing Thor­­steins­­sonar for­­stjóra eru starfs­­menn Klakka þau Jón Örn Guð­­munds­­son fjár­­­mála­­stjóri og Brynja Dögg Stein­sen rekstr­­ar­­stjóri.

Stjórn­­­ar­­for­­maður Klakka til margra ára er Pétur J. Eirík­s­­son en aðrir Íslend­ing­­ar, fyrir utan Krist­ján, sem sitja í stjórn­­inni eru Steinn Logi Björns­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Skipta og Húsa­smiðj­unn­­ar, og Gunnar Þór Þór­­ar­ins­­son, lög­­­maður hjá Logos.

„Gangi til­­­teknar for­­sendur eftir sem kaupauka­­kerfið grund­vall­­ast á, en upp­­hafs­­dagur þess mið­­ast við 17. mars 2016, gætu heild­­ar­­bón­us­greiðslur til þess­­ara níu stjórn­­enda félags­­ins numið allt að 4,42 millj­­ónum evra, jafn­­virði tæp­­lega 550 millj­­óna íslenskra króna. Stjórn­­endur Klakka gætu því fengið að með­­al­tali yfir 60 millj­­ónir króna á mann í sinn hlut í bón­us,“ segir í umfjöllun Mark­að­­ar­ins.

Gjör­sam­lega mis­boðið

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR sem á full­trúa í stjórn Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna, segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að hann hafi átt erfitt með að hemja til­finn­ingar sínar þegar hann las frétt­ina um bónusa Klakka. Honum væri gjör­sam­lega mis­boð­ið.

550 millj­ónir í bón­us. Allt að 60 millj­ónir á mann! Saga Existu, nú Klakki, Lyk­ils, áður Lýs­ingu, og þeirra félaga sem þar voru undir er lík­lega sorg­leg­asta saga hruns­ins og eft­ir­málum þess. Að stjórn­endur skuli voga sér að þiggja slíka bónusa er ekki bara grát­legt heldur algjör­lega sið­laust. Þeim væri nær að skila þessum pen­ingum til þeirra sem enn eiga um sárt að binda vegna þess skaða sem fyr­ir­tækin ollu íslensku sam­fé­lagi. Að ofur­laun­aðir stjórn­endur skuli hugs­an­lega taka til sín allt að 60 millj­ónir hver í bón­us­greiðslur er ekk­ert annað en við­bjóðs­legt. Það eru rúm níu ár frá hruni og enn er almenn­ingur að fá á sig ískaldar vatns­gusur frá sið­lausu frjár­mála og við­skipta­lífi. Og alltaf skulu líf­eyr­is­sjóð­irnir okkar tengj­ast þessum fyr­ir­tækjum og hrun­mál­um. Nú nýlega sendi Ágúst Guð­munds­son for­stjóri Bakka­varar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann nán­ast hædd­ist að íslenskum líf­eyr­is­sjóðum fyrir að selja þeim bræðrum hluti í Bakka­vör langt undir markaðsvirði og ljóst að líf­eyr­is­sjóðir okkar urðu af gríð­ar­legum upp­hæð­u­m.Enn ein rósin í hnappa­gat við­skipta sjóð­anna við þá bræð­ur. Ég kalla eftir við­brögðum líf­eyr­is­sjóða, almenn­ings og stjórn­valda. Við getum ekki látið þetta við­gang­ast mikið leng­ur.“

Hann spurði svo hvort það væri stemmn­ing fyrir því að mót­mæla fyrir utan Klakka klukkan 13 á föstu­dag.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent