Kólnunareinkenni í ferðaþjónustu sjáanleg

Fjölgun ferðamanna er nú langt undir spám ISAVIA.

ferðamenn í reykjavík
Auglýsing

Þrátt fyrir að hag­tölur séu hag­felldar þessi miss­er­in, og að vel gangi á flestum víg­stöð­um, þá sýna nýj­ustu tölur úr ferða­þjón­ust­unni að nokkuð hefur dregið úr vexti í grein­inni að und­an­förn­u. 

Þannig var fjöldi ferða­manna í nóv­em­ber um 9,8 pró­sent meiri en í fyrra, sem er minnsta aukn­ing milli ára í sex ár, eða frá því haustið 2011.

Í grein­ingu Arion banka segir að fjölg­unin hafi verið nokkuð undir spá ISA­VIA sem kynnt var á dög­un­um. „Það er jafn­vel athygl­is­verð­ara að í nóv­em­ber fjölg­aði ferða­mönnum mun minna en skv. spá ISA­VIA sem birt var í nóv­em­ber og gerði ráð fyrir 31% fjölg­un. Að hluta til skýrist þetta af því að far­þegum um Kefla­vík­ur­flug­völl fjölg­aði um 20% en ekki 24% eins og spáð hafði ver­ið. Einnig skiptir máli að hlut­fall skiptifar­þega var fimm pró­sentu­stigum hærra en spáð hafði verið eða 34%. Með það í huga og að Pól­verjar stóðu undir nærri fimmt­ungi fjölg­unar erlendra far­þega sem fara frá land­inu er því lík­legt að raun­veru­legur fjöldi erlendra ferða­manna hafi verið lægri í nóv­em­ber. Stærsti hópur erlendra rík­is­borga hér á landi er sem kunn­ugt er með pólskt rík­is­fang, eða 46% erlendra rík­is­borg­ara, og því er vænt­an­lega um að ræða íbúa lands­ins að miklu leyti í tölum um brott­farir Pól­verja,“ segir í grein­ing­unni.

Auglýsing

Fjölgun ferða­manna á und­an­förnum árum hefur verið helsti drif­kraft­ur­inn að baki upp­gangi í efna­hags­líf­inu á und­an­förnum árum. 

Árið 2010 komu um 450 þús­und erlendir ferða­menn til lands­ins en útlit er fyrir að fjöld­inn verði kom­inn í 2,3 millj­ónir á þessu ári. 

Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins var korta­velta erlendra ferða­manna 188 millj­arðar króna, en hún hefur auk­ist stöðugt frá ári til árs und­an­farin ár. 

Eins og sést á þessari mynd, þá virðist nokkur kólnun nú vera komin upp í ferðaþjónustu. Í alþjóðlegum samanburði er vöxturinn á milli ára þó enn töluvert mikill.

Í grein­ingu Arion banka segir að ef þessi kóln­un, sem nú er farin að sjást í tölum úr ferða­þjón­ust­unni, muni skjóta rótum þá gæti verð­bólgan farið hækk­andi og gengi krón­unnar gefið eft­ir. „Ef hæg­ari fjölgun ferða­manna er það sem koma skal, sér­stak­lega ef hún verður undir spám, mun það hægja á vexti hag­kerf­is­ins að óbreyttu. Það gæti því opnað á svig­rúm til frek­ari vaxta­lækk­ana á næsta ári. Það er þó háð ýmsu og mögu­lega ósk­hyggja því hæg­ari fjölgun ferða­manna eða stöðnun í fjölda þeirra gæti jafn­vel leitt til að krónan gefi eitt­hvað eftir á næst­unni sem myndi auka verð­bólgu og því kalla á hærri vexti en ella,“ segir í grein­ingu Arion banka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent