Lífeyrissjóður verzlunarmanna telur sig ekki hafa getað hindrað bónusa

Lífeyrissjóður verzlunarmanna telur kaupauka til ­stjórn­­enda og stjórn­­­ar­­manna Klakka umfram eðlileg viðmið og ekki í samræmi við þau sjónarmið sem starfskjarastefna sjóðsins byggir á.

lykillinn131217
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna telur kaupauka til stjórn­­­enda og stjórn­­­­­ar­­­manna Klakka um­fram eðli­leg við­mið og ekki í sam­ræmi við þau sjón­ar­mið sem starfs­kjara­stefna sjóðs­ins byggir á. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn var hins vegar ekki í neinni stöðu til að hindra sam­þykkt starfs­kjara­stefn­unnar þar sem hann á ein­ungis óveru­legan hlut í Klakka. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sjóðnum í dag. 

­Mikið hefur verið fjallað um ofur­bónusa ­stjórn­­­enda og stjórn­­­­­ar­­­manna Klakka, sem áður hét  Ex­ista, og heldur utan um 100 pró­­­senta hlut í eigna­­­leig­u­­­fyr­ir­tæk­inu Lykli, áður Lýs­ing. Þau geta fengið sam­an­lagt um 550 millj­­­ónir króna í bónus í tengslum við vænt­an­­­lega sölu á Lykli og vegna ann­­­arra eigna félags­­­ins sem hafa verið seldar á síð­­­­­ustu árum.

Auglýsing

Til­kynn­ingin í heild sinni:

„Um­fangs­miklar bón­us­greiðslur í óþökk Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna

Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna (LV) þykir miður þau sjón­ar­mið sem komið hafa fram í fjöl­miðlum um að sjóð­ur­inn hafi ekki sinnt eðli­legri hags­muna­gæslu fyrir sjóð­fé­laga þegar ákveðnar voru kaupauka­greiðslur til stjórn­enda og stjórnar Klakka. Meg­in­mark­mið LV er fyrst og fremst að leit­ast eftir sem bestri ávöxtun á eignir sjóð­fé­laga til að geta greitt sem traustastan líf­eyri. Í því hefur honum orðið vel ágengt á und­an­förnum árum. Fyrir liggur að LV hafði ekk­ert afl til að breyta þeirri ákvörðun sem tekin var af hálfu mik­ils meiri­hluta hlut­hafa Klakka. 

Á hlut­hafa­fundi Klakka þann 11. des­em­ber 2017 var sam­þykkt starfs­kjara­stefna fyrir félagið sem felur í sér mögu­leika á kaupauka­greiðslum til starfs­manna og stjórn­ar­manna sem geta numið vel rúmum 500 millj­ónum króna. 

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna telur kaupauka sem þennan umfram eðli­leg við­mið og ekki í sam­ræmi við þau sjón­ar­mið sem starfs­kjara­stefna sjóðs­ins byggir á. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn var hins vegar ekki í neinni stöðu til að hindra sam­þykkt starfs­kjara­stefn­unnar þar sem hann á ein­ungis óveru­legan hlut í Klakka. 

Eigna­hlutur LV í Klakka nemur um 1,5% af hlutafé félags­ins og er bók­færður á um 47 millj­ónir króna hjá líf­eyr­is­sjóðn­um. Hér er því um að ræða hlut sem nemur ein­ungis um 0,007% af um 650 millj­arða eigna­safni LV. Til við­bótar eiga nokkrir aðrir líf­eyr­is­sjóðir um 4 til 5% eigna­hlut eins og fram hefur komið í frétt­u­m. 

Eigna­hlutur LV er til kom­inn vegna úrvinnslu á búi Exista hf. sem lauk með umfangs­miklum nauða­samn­ingum og því er ekki um hefð­bundna fjár­fest­ing­ar­eign að ræða. Eins og fram hefur komið í til­kynn­ingu frá Klakka eru ríf­lega 80% hluta­fjár Klakka beint eða óbeint í eigu erlendra aðila. Þeir hafi alfarið átt frum­kvæðið að hinu umdeilda kaupauka­kerfi. Þá er vert að nefna að kaupauka­kerfið naut ekki stuðn­ings þess full­trúa í stjórn Klakka sem LV og fleiri líf­eyr­is­sjóðir til­nefndu til stjórn­ar­set­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent