Ágúst Ólafur: Þetta fjárlagafrumvarp er „svik við kjósendur“

Þingmaður Samfylkingarinnar segir Vinstri græn hafa selt sig ódýrt í skiptum fyrir þrjá ráðherrastóla.

Bjarni Benediktsson Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, gagn­rýnir fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar og segir aug­ljóst á því, að Vinstri græn hafi „selt sig ódýrt“ í skiptum fyrir ráð­herra­stóla. 

Í við­tali við Frétta­blaðið í dag, segir Ágúst Ólafur að fjár­laga­frum­varpið sé 98 pró­sent eins og frum­varp Bene­dikts Jóhann­es­son­ar, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, sem Vinstri græn gagn­rýndu harð­lega. 

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, not­aði orðið „svelti­stefna“ um það frum­varp og fjár­mála­á­ætl­un­ina sem Bene­dikt og rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar lagði fram. „Það er alveg ljóst að Vinstri græn hafa selt sig afskap­lega ódýrt til að fá þrjá ráð­herra­stóla. Það er eng­in inn­spýt­ing í inn­viði eins og Vinstri græn lof­uð­u,“ segir Ágúst Ólaf­ur. „Þetta er 98 pró­sent eins og fjár­laga­frum­varp ­síð­ustu rík­is­stjórn­ar ­sem Vinstri græn gagn­rýndu harð­lega [...] Það eru eng­ar ­tekjur af erlendum ferða­mönn­um, ­sjáv­ar­út­veg­ur­inn er áfram stikk­frí, það er ekki talað um auð­legð­ar­skatt eins og Vinstri græn lögðu áherslu á. Auknar arð­greiðslur úr bönk­un­um ­sjást hvergi. Þannig að það er ekki bara að vel­ferð­ar­málin og mennta­mál­in fá lítið heldur eru tekju­leið­irnar ekki nýttar eins og ætti að ger­a á hátindi upp­sveifl­unn­ar. Þannig að þetta fjár­laga­frum­varp er bara ein ­stór svik við kjós­endur og fær algjöra ­fall­ein­kunn.“

Auglýsing

Sam­kvæmt frum­varp­inu, sem Bjarni Bene­dikts­son lagði fram í gær, er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður verði rek­inn með 35 millj­arða afgangi. Frum­varps Bene­dikts gerði ráð fyrir 44 millj­arða afgang­i. 

Nýja rík­is­stjórnin ætlar að eyða 15 millj­örðum krónum meira en til stóð að eyða í fjár­laga­frum­varp­inu sem Bene­dikt Jóhann­es­son lagði fram í sept­em­ber. 

Að hluta til koma þeir pen­ingar til vegna þess að svig­rúm til eyðslu er meira en áður var áætl­að, vegna þess að tekjur rík­is­sjóðs verða sex millj­örðum krónum hærri en talið var að þær yrðu í sept­em­ber. Alls eiga inn­heimtar tekjur að verða 840 millj­arðar króna sem er það mesta sem ríkið hefur nokkru sinni haft í tekjur á einu ári. 

Frum­varpið tekur að miklu leyti mið af því að staða efna­hags­mála er traust um þessar mund­ir, eftir mikið hag­vaxt­ar­skeið und­an­farin sex ár. Bjarni sagði þó í kynn­ingu sinni á frum­varp­inu að margt benti til þess að Ísland væri nú á toppi hag­sveifl­unnar og næstu árin yrði ekki jafn mik­ill hag­vöxtur eins og verið hefur und­an­far­ið. Engu að síður væri staðan sterk, atvinnu­leysi lítið og við­var­andi afgangur af utan­rík­is­verslun lands­ins. Þar vegur upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar ekki síst þungt, en mik­ill afgangur hefur verið af þjón­ustu­við­skiptum við útlönd, að mestu vegna ferða­þjón­ust­unn­ar, en að sama skapi hefur verið halli á vöru­við­skipt­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent