Samgöngum „stefnt í voða“

Samtöku ferðaþjónustunnar segja óásættanlegt ef til verkfalls kemur hjá flugvirkjum. Það hefst á sunnudaginn, að óbreyttu.

flugvél
Auglýsing

Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar segja það óásætt­an­legt ef til verk­falls komi hjá flug­virkj­um, en það hefst 17. des­em­ber næst­kom­andi, ef ekki verður búið að leysa úr kjara­deilu þeirra með samn­ing­um. 

Í til­kynn­ingu segir að verk­fallið setji sam­göngur í upp­nám og „stefni þeim í voða“. Í til­kynn­ing­unni segir að ferða­þjón­ustan eigi mikið und­ir, og það skipti miklu máli fyrir þjóð­ar­búið að halda sam­göngum góðum til og frá land­inu.

Í fyrra voru gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­bús­ins vegna ferða­þjón­ust­unnar 463 millj­arðar króna, eða sem nemur um 39 pró­sent af heild­inni. Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar segja mikið í húfi, og hvetja til þess að verk­falli verði afstýrt.

Auglýsing

Yfir­lýs­ingin er eft­ir­far­andi í heild sinni:

„Flug­virkja­fé­lag Íslands hefur boðað til ótíma­bund­ins verk­falls frá og með nk. sunnu­degi 17. des­em­ber náist ekki samn­ing­ar. Komi til verk­falls mun það strax hafa gríð­ar­leg áhrif, en ætla má að aðgerð­irnar muni raska flugi hjá 10 þús­und far­þegum dag hvern sem aðgerðir flug­virkja standa.

Frá því árið 2009 hefur Flug­virkja­fé­lag Íslands boðað til verk­falls á u.þ.b. eins og hálfs árs fresti með til­heyr­andi óvissu og höggi fyrir ferða­þjón­ust­una á Íslandi. Það segir sig sjálft að slíkt vinnu­mark­aðslíkan gengur ekki upp og er full­reynt. Tryggja verður stöðugt rekstr­ar­um­hverfi grein­ar­innar til fram­tíð­ar. Það er umhugs­un­ar­efni hvernig fámennir hópar í kjara­bar­áttu geta ítrekað komið ferða­þjón­ust­unni í upp­nám.

Jól og ára­mót eru handan við horn­ið, en Ísland sem áfanga­staður fyrir ferða­menn yfir hátíð­irnar hefur verið að styrkj­ast á und­an­förnum árum. Ferða­þjón­ustan er afar við­kvæm atvinnu­grein, sér­stak­lega á lands­byggð­inni, og má við litlum áföllum ásamt því að afleiddar atvinnu­greinar eiga mikið undir að flug­sam­göngur til og frá land­inu séu greið­ar.

Verk­falls­hótun flug­virkja hefur þegar valdið miklum óróa meðal fjöl­margra fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu og hafa afbók­anir þegar borist ásamt því að ferða­heildsalar eru ugg­andi. Umræðan ein og sér hefur þannig þegar haft áhrif. Tryggar sam­göngur til og frá land­inu er eitt­hvað sem verð­ur­ að vera hægt að treysta á.

Ferða­þjón­ustan er stærsta útflutn­ings­at­vinnu­grein lands­ins. Á síð­asta ári námu gjald­eyr­is­tekjur af ferða­þjón­ustu um 39% af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­inn­ar, eða 463 millj­örðum króna. Á sama tíma áætla SAF að bein­ar, nettó, tekjur ríkis og sveit­ar­fé­laga af grein­inni hafi numið um 54 millj­örð­um. Þá eru óbein áhrif grein­ar­innar mikil og því mun stöðvun flugs þess félags sem flýgur með 10 þús­und ferða­menn á dag, og hefur mesta mark­aðs­hlut­deild, hafa mikil nei­kvæð áhrif á hag­kerfið í heild sinni. Á hverjum degi sem verk­fall stendur yfir er fjár­hags­legt tjón fyrir þjóð­ar­búið því gíf­ur­legt.

Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar hvetja samn­ings­að­ila til að leita allra leiða til að ná sáttum í deil­unni sem fyrst og eyða þannig óvissu fyrir ferða­þjón­ust­una og lands­menn alla. Ábyrgð samn­ings­að­ila er mik­il, enda er flug aðal sam­göngu­máti ferða­manna til og frá land­inu.

SAF treysta því að samn­ingar náist sem allra fyrst þannig að ekki komi til aðgerða af hálfu flug­virkja sunnu­dag­inn 17. des­em­ber.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent