Einnota plastpokar bannaðir í Boston

Borgarstjóri Boston hefur nú skrifað undir ályktun þess efnis að banna einnota plastpoka í borginni.

Plastpoki
Auglýsing

Boston er sex­tug­asta borgin til banna einnota plast­poka í Massachu­setts í Banda­rík­un­um. Martin Walsh borg­ar­stjóri Boston skrif­aði undir ályktun þess efnis að banna notkun einnota plast­poka og mun hún taka gildi í des­em­ber á næsta ári. Til stendur að sams­konar bann taki gildi í öllu Massachu­setts-­ríki.

Þetta kemur fram í frétt Inhabitat í vik­unni. Í henni segir að 357 milljón einnota plast­pokar hafi verið not­aðir í borg­inni á þessu ári. 

Matt O’M­alley borg­ar­full­trúi í Boston var aðal­flutn­ings­maður álykt­un­ar­innar og segir hann að mikil vinna felist í end­ur­vinnslu pokanna hjá starfs­mönnum borg­ar­innar og að 20 tonn af plast­pokum fari í svo­kallað „sing­le-str­eam recycl­ing“ sem felur í sér að plast, papp­ír, málmar og önnur efni fara á sama stað og eru ekki flokkuð sér­stak­lega.

Auglýsing

Hann segir jafn­framt að einnota plast­pokar séu ein­ungis not­aðir í um 12 mín­útur að jafn­aði en áhrif þeirra á stræti borg­ar­innar og skolpræsi séu var­an­leg. Þessi umhverf­is­sjón­ar­mið hafi hjálpað til við að sann­færa borg­ar­stjór­ann að skrifa undir álykt­un­ina.

Þegar bannið tekur gildi munu við­skipta­vinir þurfa að borga fimm sent fyrir papp­írs­poka eða end­ur­vinn­an­lega poka.

Gagn­rýnendur álykt­un­ar­innar segja að hún sé aftur á móti skattur á þá fátæku og hafa þeir lýst yfir óánægju með áform­in. Sumir telja þetta vera óþarfa fyr­ir­höfn fyrir fólk sem er með minna milli hand­anna.

O’M­alley svarar gagn­rýn­inni með því að segj­ast ætla að vinna með öllum hlut­að­eig­endum til að standa við lof­orðið um bannið og til að tryggja íbúum borg­ar­innar aðgengi að end­ur­vinn­an­legum pok­um.

Mikil vakn­ing hefur orðið á Íslandi varð­andi plast­notkun und­an­farin miss­eri. Í sept­em­ber síð­ast­lið­inn stóð hópur kvenna fyrir átak­inu Plast­laus sept­em­ber sem var ætlað að vekja fólk til umhugs­unar um ofgnótt og skað­semi plasts í umhverf­inu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Sam­kvæmt aðstand­endum átaks­ins gekk það vonum framar og sagði ein þeirra í við­tali við Kjarn­ann í októ­ber að þær væru hvergi nærri hættar að vekja athygli á mál­efn­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent