127 prósent hækkun til stjórnmálaflokka á leiðinni inn í fjárlög

Stjórnmálaflokkar landsins munu fá 648 milljónir króna frá ríkinu á næsta ári eftir að breytingartillaga var lögð fram við fjárlög. Framlögin hækka um 362 milljónir frá því sem áður var ákveðið. Sex formenn af átta styðja breytinguna.

Þeir flokkar sem ná lágmarksfylgi í kosningum munu sjá tekjur sínar vaxa umtalsvert á næsta ári. Þær tekjur koma úr ríkissjóði.
Þeir flokkar sem ná lágmarksfylgi í kosningum munu sjá tekjur sínar vaxa umtalsvert á næsta ári. Þær tekjur koma úr ríkissjóði.
Auglýsing

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar hefur gert til­lögu um að fram­lög til stjórn­mála­flokka verði hækkuð um 362 millj­ónir króna  á næsta ári. Fram­lögin verða þá 648 millj­ónir króna og vaxa 127 pró­sent frá því sem áður var ætlað að myndi renna til mála­flokks­ins. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar sem nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja skrifa und­ir.

Í álit­inu kemur fram að til­lagan sé studd með yfir­lýs­ingu sex for­manna stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi. Þeir eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Fram­sókn­ar­flokk­ur, Vinstri græn, Sam­fylk­ing, Mið­flokkur og Við­reisn. Flokkur fólks­ins og Píratar eru ekki aðilar að til­lög­unni. Í yfir­lýs­ingu for­mann­anna kemur meðal ann­ars fram að „til­gangur opin­berra fjár­fram­laga til stjórn­mála­sam­taka er að tryggja fjár­mögn­un, sjálf­stæði og lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð allra stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi. Virk starf­semi stjórn­mála­sam­taka er horn­steinar lýð­ræð­is­ins og er nauð­syn­legt að tryggja á hverjum tíma að þau geti sinnt hlut­verki sínu með eðli­legum hætti og án þess að þurfa að treysta um of á fjár­fram­lög einka­að­ila. Er það ósk for­manna sem rita undir yfir­lýs­ing­una að for­sæt­is­ráð­herra setji af stað vinnu við end­ur­skoðun laga nr. 162/2006, um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda, með þátt­töku full­trúa allra stjórn­mála­sam­taka sem sæti eiga á Alþing­i.“

Erindi sent inn á mánu­dag

Kjarn­inn greindi frá því á mið­viku­dags­kvöld að fram­kvæmda­stjórar eða full­trúar sex stjórn­mála­flokka hefðu sent fjár­laga­nefnd erindi 18. des­em­ber. Það bar yfir­skrift­ina: „Nauð­­syn­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­mála­­sam­taka“.

Í því er farið fram á að fram­lög til stjórn­­­mála­­flokka verði „leið­rétt“.

Auglýsing
Í grein­­ar­­gerð sem fylgdi erind­inu segir að sú upp­­hæð sem stjórn­­­mála­­flokkum sé ætluð á fjár­­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­­­mála­­starf um allt land, jafnt á sviði lands­­mála og sveit­­ar­­stjórna, árið um kring.

Til sam­an­­burðar má nefna að dóms­­mála­ráðu­­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­­kosn­­ing­anna á síð­­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­­­mála­­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­­magn á við helstu hags­muna­­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­­trúa á Alþingi.

Til sam­an­­burðar má 1 geta að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eru með 30 starfs­­menn, Sam­tök iðn­­að­­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­ar­út­­­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­­fræð­i­þekk­ingu og alþjóða­­tengsl eng­inn inni í stjórn­­­mála­­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­­­mála­­flokka og að upp­­­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent