Nefnd til tryggja starfsemi starfandi stjórnmálaflokka sett á laggirnar

Fulltrúar sex stjórnarmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi fóru fram á viðbótaframlag til stjórnmálaflokkanna sjálfra. Nefnd hefur nú verðið skipuð til að endurskoða lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.

Alþingi
Auglýsing

Skipun nefndar um end­ur­skoðun laga um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda og um upp­lýs­inga­skyldu þeirra, var sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi í morg­un.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem for­sæt­is­ráðu­neytið sendi frá sér í dag. 

Mark­miðið með nefnd­inni er meðal ann­ars að leita leiða til að tryggja fjár­mögn­un, sjálf­stæði og lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð og gagn­sæi í starf­semi allra starf­andi stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi, óháð stærð þeirra, segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Auglýsing

Í frétt Kjarn­ans sem birt­ist í fyrra­dag kemur fram að full­trúar sex stjórn­ar­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi hafi farið fram á að stjórn­mála­flokkar fái 362 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag á fjár­lögum næsta árs til við­bótar við þær 286 millj­ónir króna sem flokk­arnir áttu að fá. 

Heild­ar­fram­lag til þeirra, verði erindi flokk­anna sam­þykkt, verður þá 648 millj­ónir króna. Fram­lagið mun því aukast um 127 pró­sent ef af hækk­un­inni verð­ur.

Tæki­færi til að jafna aðstöðu flokk­anna

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins kemur jafn­framt fram að tölu­verðum hluta af fram­lögum rík­is­ins til stjórn­mála­flokka sé ráð­stafað í kostn­að­ar­liði sem eru óháðir fylgi eða fjölda þing­manna. Þar megi nefna skrif­stofu­rekst­ur, félags­heim­ili, félaga­tal, lág­marks starfs­manna­hald og lög­bundna skyldu til bók­halds og end­ur­skoð­unar á árs­reikn­ingum sem skila ber ár hvert til Rík­is­end­ur­skoð­un­ar.

Með fjölgun flokka á Alþingi hafi hlut­fall fjár­muna sem varið er í rekstur á grunn­stoðum flokk­anna hækkað svo um munar en á móti hafa fram­lög lækk­að.

Með end­ur­skoðun lag­anna gef­ist tæki­færi til að jafna aðstöðu flokk­anna að þessu leyti, óháð stærð þeirra, sem felur sér í lagi í sér auk­inn stuðn­ing við smærri flokka.

„Gert er ráð fyrir að í nefnd­inni eigi sæti full­trúar allra stjórn­mála­sam­taka, sem sæti eiga á Alþingi, auk full­trúa for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem stýrir nefnd­inni, full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, en lög um fjár­mál stjórn­ar­mála­sam­taka heyra sam­kvæmt for­seta­úr­skurði undir það ráðu­neyti, og full­trúi Rík­is­end­ur­skoð­un­ar,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent