Obama: Fólk lifir í „sínum veruleika“ á samfélagsmiðlum

Barack Obama segir að samfélagsmiðlar hafi ýtt undir fordóma hjá fólki. Þeir séu varasamir, og fólk verði að tala í hefðir um hefðbundin samskipti en ekki aðeins lifa í veröldinni á internetinu.

BARACK-OBAMA.jpg
Auglýsing

Barack Obama, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, segir í við­tali sem Harry Breta­prins tók við hann, fyrir breska rík­is­út­varpið BBC, að óábyrg notkun sam­fé­lags­miðla sé hættu­leg sam­fé­lög­um. Hann hvetur þá sem eru leið­tog­ar, hvar sem þeir eru í sam­fé­lag­inu, til þess að beita sér fyrir því að opin og upp­lýst umræða geti fundið sér far­veg á inter­net­inu á nýjan leik. Þannig sé raunin ekki núna, og hætt­urnar séu aug­ljós­ar.

„Ein af hætt­unum við inter­netið þessi miss­er­in, er að fólk getur lifað í algjör­lega ólíkum veru­leika. Upp­lýs­inga­flæð­ið, innan þess ramma sem skap­ast hjá hverjum og ein­um, er að ýta undir for­dóma hjá fólki,“ segir Obama.

Hann segir að það þurfi að finna leiðir til nota þessa til­tölu­lega nýju tækni með ábyrg­ari hætti, þannig að heilu sam­fé­lögin klofni ekki vegna rangra eða mis­vísandi upp­lýs­inga um hin ýmsu mál.

Auglýsing



Hann segir einnig að fólk verði að geta skilið á milli ver­ald­ar­innar á sam­fé­lags­miðl­unum og síðan í hinu dag­lega lífi. „Fólk kemst oft að því, að þegar það hitt­ist eftir að hafa kynnst á sam­fé­lags­miðl­un­um, að hlut­irnir eru flókn­ari en þeir virtu­st,“ segir Obama.

Hann segir sam­fé­lags­miðl­ana gefa of ein­falda mynd af líð­andi stund, og fólk verði að passa sig á því. Fólki eigi að hitt­ast á barn­um, í hverf­unum og halda í þá hefð að kynn­ast almenni­lega „maður á mann“. 

Mikil umræða hefur átt sér stað víða um heim um áhrif sam­fé­lags­miðla á sam­fé­lög­in, og lét fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Face­book, Cham­ath Pali­hapiti­ya, hafa eftir sér á ráð­stefnu Stan­ford háskóla, sem The Verge greindi frá, að Face­book væri að „tæta sam­fé­lög í sund­ur“. Upp­lýs­inga­flæðið og sam­skiptin sem ættu sér stað á Face­book væru að gjör­breyta sam­fé­lög­um, og þá til hins verra. Miðl­arnir væru ávana­bind­andi og umræðan á þeim væri vill­andi og grunn, og ýtti undir öfgar og for­dóma.

Óhætt er að segja að upp­gangur sam­fé­lags­miðla hafi verið ótrú­lega hrað­ur. 

Á síð­ustu tíu árum, sam­hliða hraðri útbreiðslu snjall­síma, hefur not­enda­fjöldi sam­fé­lags­miðla marg­fald­ast. 

Face­book er sá mið­ill sem hefur áð mestri fót­festu en virkir not­endur voru um tveir millj­arðar um heim allan, um mitt þetta ár. Facebook. Notendum fjölgar stöðugt, og eru nú um tveir milljarðar af ríflega sjö milljörðum íbúa jarðar, með Facebook aðgang.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent