Arion banki atkvæðamestur í hlutabréfum en Landsbankinn í skuldabréfum

Hörð samkeppni er meðal þeirra sem koma að viðskiptum með verðbréf í kauphöllinni. Umsvif á skráðum markaði með hlutabréf jukust um 13 prósent í fyrra.

kjarninn_nasdaq_vef.jpg
Auglýsing

Arion banki var með mestu hlut­deild kaup­hall­að­að­ila á aðal­mark­aði kaup­hall­ar­innar á árinu 2017, eða 24,3 pró­sent. Lands­bank­inn kom þar á eftir með rúmega 20 pró­sent og Fossar mark­aðir voru með 14,7 pró­sent.  

Ef litið er ein­göngu til hluta­bréfa­við­skipta sem eiga sér stað við pörun til­boða í til­boða­bókum (pöruð við­skipti) er Arion banki einnig með mestu hlut­deild­ina, 27,8 pró­sent, Lands­bank­inn með þá næst mestu, 22,6 pró­sent og Íslands­banki í þriðja sæti með 18,7 pró­sent hlut­deild, að því er fram kemur í sam­an­tekt Nas­daq.

Á skulda­bréfa­mark­aði var Lands­bank­inn með mestu hlut­deild­ina, 17,9 pró­sent, Íslands­banki fylgdi í kjöl­farið með 17,1 pró­sent og Arion banki var með þriðju hæstu hlut­deild­ina, 16,5 pró­sent (sjá myndir í við­hengi fyrir hlut­deild allra kaup­hall­ar­að­ila).

Auglýsing

Kvika banki er með mestu hlut­deild­ina í pöruðum skulda­bréfa­við­skipt­um, 25,8 pró­sent, þá kemur Íslands­banki með 22,6 pró­sent og Arion banki þar næst með 22,1 pró­sent hlut­deild.

Umsvif á hluta­bréfa­mark­aði juk­ust umtals­vert á síð­asta ári, eða um 13 pró­sent miðað við árið á und­an. Heild­ar­við­skipti með hluta­bréf á árinu námu 632 millj­örðum eða rúm­lega 2,5 millj­örðum króna á dag.  Heild­ar­við­skipti námu 559 millj­örðum árið 2016.

Staðan við lokun markaða í dag, meðal félaga sem eru skráð á aðallista kauphallarinnar. Mynd: Keldan.Mest voru við­skipti með bréf Marel (MARL) 114,5 millj­arð­ar, Icelandair Group (ICEA­IR) 75,9 millj­arð­ar, Sím­ans (SIM­INN) 59,3 millj­arð­ar, Reita fast­eigna­fé­lags 55,6 millj­arðar og Haga (HAGA) 51,6 millj­arð­ar.  

Á Aðal­mark­aði hækk­aði verð bréfa HB Granda mest eða um 35 pró­sent á árinu og næst verð bréfa Fjar­skipta (Voda­fo­ne) um 39 pró­sent.  Á Nas­daq First North mark­aðnum hækk­aði verð bréfa Iceland Seafood International mest eða um 31 pró­sent.

Félögin á aðal­mark­aði eru nú 16 tals­ins, en Össur fór af íslenska mark­aðnum í des­em­ber og eru bréf félags­ins ein­göngu í við­skiptum á mark­aðnum í Kaup­manna­höfn.

Vísi­talan mark­að­ar­ins lækk­aði um fjögur pró­sent í fyrra, en mark­að­ur­inn skip­ist svo til í tvö hólf, þar sem um helm­ingur félaga lækk­aði tölu­vert en hinn hækk­aði.

Marel er lang­sam­lega verð­mætasta félagið í kaup­höll­inni, en mark­aðsvirði þess nemur um 224 millj­örðum króna. Mark­aðsvirði skráðra félaga var um 820 millj­arðar í lok árs, en það er um 17 pró­sent minna en í lok árs 2016. Munar þar ekki síst um brott­hvarf Öss­urar af mark­aðn­um. Gengi bréfa HB Granda hækk­aði mest á árinu 2017, eða um 34,6 pró­sent, og gengi bréfa Icelandair lækk­aði mest, eða um 36,3 pró­sent.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent