Átta aðilar hafa áhuga á United Silicon

Afar ólíklegt er að sala á United Silicon klárist áður en að greiðslustöðvunarfrestur fyrirtækisins rennur út 22 janúar.

Úr kísilverinu. Mynd: United Silicon
Auglýsing

Alls hafa um átta aðilar áhuga á kaupum á verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Að mestu er um að ræða erlenda fag­fjár­festa. Afar ólík­legt er að salan nái fram að ganga áður en greiðslu­stöðvun fyr­ir­tæk­is­ins rennur út 22. jan­úar næst­kom­andi.



Karen Kjart­ans­dótt­ir, tals­maður United Sil­icon, segir að ekki sé setið að form­legum við­ræðum og því sé erfitt að segja til um fram­hald­ið. Hún segir að við­ræður við áhuga­sama aðila hefj­ist að fullu á næstu dög­um.

Rekstur kís­il­málm­verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík var stöðv­aður af Umhverf­is­stofnun þann 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Frá þeim tíma hefur farið fram ítar­leg skoðun á bún­aði fyr­ir­tæk­is­ins á vegum norska ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Multiconsult

Auglýsing
Karen segir fjár­magns­þörf­ina hafa verið van­reikn­aða frá upp­hafi. Mat sér­fræð­ing­anna sýni að um 25 millj­ónir evra þurfi til að fyr­ir­tækið verði eins og best verður á kosið og áætl­anir gengu út á. Í skýrslu úttekt­ar­að­ila komi fram að grunn­hönnun ofns­ins sjálfs sé góð en aug­ljóst sé að ódýr og óvand­aður jað­ar­bún­aður sé orsök tíðra bil­ana sem bæði skap­aði erf­ið­leika í fram­leiðslu og rekstri auk þess sem sér­fræð­ing­arnir telji þau vand­kvæði meg­in­or­sök lykta­meng­unar á svæð­inu.



Kjarn­inn hefur áður greint frá því að Arion banki hafi afskrifað a.m.k 4,8 millj­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn hefur að mestu tekið yfir hlutafé í United Sil­icon en útistand­andi skuld­bind­ingar nema enn þá 5,4 millj­­­örð­um, sam­­­kvæmt síð­­­asta birta upp­­­­­gjöri bank­ans. Arion banki hefur auk þess ábyrgst rekst­­­ur­inn á greiðslu­­­stöðv­­­un­­­ar­­­tím­­­anum en hann hefur borgað um 200 millj­­­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­­­stöðv­­­un­­­ar­­­tím­inn hófst í ágúst.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent