Hámarksgreiðsla úr Fæðingarorlofssjóði hækkar um 20.000 krónur

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

barn
Auglýsing

Hámarks­greiðsla úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs hækkar úr 500.000 krónum í 520.000 krón­ur. Ásmundur Einar Daða­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur und­ir­ritað reglu­gerð, um breyt­ingu á reglu­gerð, um greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði og greiðslu fæð­ing­ar­styrks. 

Þetta kemur fram í frétt Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs í dag. 

Sam­kvæmt reglu­gerð­inni öðl­ast eft­ir­far­andi breyt­ingar gildi 1. jan­úar 2018 og eiga við um for­eldra barna sem fæðast, eru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur 1. jan­úar 2018 eða síð­ar.

Auglýsing

Lág­marks­greiðsla fyrir 25 til 49 pró­sent starf hækkar úr 118.335 krónum í 123.897 krónur og fyrir 50 til 100 pró­sent starf hækkar úr 164.003 krónum í 171.711 krón­ur. 

Fæð­ing­ar­styrkur hækkar einnig

Fæð­ing­ar­styrkur til for­eldra utan vinnu­mark­aðar eða í minna en 25 pró­sent starfi hækkar úr 71.563 krónum í 74.926 krónur og fæð­ing­ar­styrkur til for­eldra í fullu námi hækkar úr 164.003 krónum í 171.711 krón­ur. 

Eldri fjár­hæðir gilda áfram vegna barna sem fæddust, voru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur á tíma­bil­inu 15. októ­ber 2016 til 31. des­em­ber 2017 sem og fyrir 15. októ­ber 2016. 

Færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof en áður

Kjarn­inn greindi frá því í apríl síð­ast­liðnum að þeim feðrum sem taka fæð­ing­­ar­or­lof með börn­unum sínum hafi haldið áfram að fækka í fyrra, sam­­kvæmt tölum frá Fæð­ing­­ar­or­lofs­­sjóði. Færri feður taka fæð­ing­­ar­or­lof en áður, og þeir sem taka orlof gera það í færri daga en áður. 

Flestir sem að fæð­ing­­ar­or­lofs­­málum koma eru sam­­mála um það að ákvörðun stjórn­­­valda um að skerða hámarks­­greiðslur úr Fæð­ing­­ar­or­lofs­­sjóði veru­­lega eftir hrun hafi haft mikil áhrif, sér­­stak­­lega á töku feðra á fæð­ing­­ar­or­lofi. Meðal ann­­ars hefur Kristín Ást­­geir­s­dótt­ir, fram­­kvæmda­­stýra Jafn­­rétt­is­­stofu, sagt að þetta ein­staka kerfi, sem búið var að byggja upp á Íslandi hvað varðar fæð­ing­­ar­or­lof karla, sé að molna niður fyrir framan okk­­ur. 

Taka minna fæð­ing­ar­or­lof en þeir eiga rétt á

Frá því að farið var að skerða hámarks­­greiðslur úr sjóðnum eftir hrun hefur hlut­­fall þeirra karla sem taka fæð­ing­­ar­or­lof farið úr 90 pró­­sent­um, árið 2008, í 74 pró­sent árið 2016. Hlut­­fallið í fæð­ing­­ar­or­lofi feðra hefur ekki verið lægra á þessu tíma­bili en árið 2016, og það hefur lækkað hratt á milli ára. Árið 2015 nýttu 80 pró­­sent feðra fæð­ing­­ar­or­lof sem þeir áttu rétt á að ein­hverju leyti.

Að sama skapi taka feður sífellt færri daga í fæð­ing­­ar­or­lofi, en árið 2016 tóku feður að með­­al­tali 75 daga í fæð­ing­­ar­or­lof, en árið 2015 var með­­al­talið 84 dag­­ar, og fyrir hrun var það 101 dagur að með­­al­tali. Ein­­göngu ell­efu pró­­sent feðra taka meira en þá þrjá mán­uði sem þeir eiga rétt á sam­­kvæmt lög­­um, en þetta hlut­­fall var komið í 23 pró­­sent árið 2008. Helm­ingur feðra sem taka fæð­ing­­ar­or­lof taka minna en þeir eiga rétt á, en hlut­­fallið hefur aldrei verið hærra. Árið 2008 tóku aðeins 22 pró­sent feðra styttra orlof en þrjá mán­uð­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent