Pólitísk ábyrgð dómsmálaráðherra virðist engin vera

Prófessor í lögfræði segir að afleiðingar af því að ráðherra sé dæmdur fyrir að brjóta lög við skipun dómara séu ríkið greiði skaðabætur. Pólitísk ábyrgð ráðherrans sem brýtur lögin virðist ekki vera nein. Hún óttast um sjálfstæði dómstóla.

7DM_0415_raw_2103.JPG
Auglýsing

Björg Thoraren­sen, pró­fessor í lög­fræði við Háskóla Íslands, segir að það hafi ítrekað gerst á síð­ustu árum að ráð­herra sé dæmdur fyrir að brjóta lög við skipun dóm­ara. Afleið­ingar af því hafi ein­vörð­ungu verið þær að íslenska ríkið sé dæmt skaða­bóta­skylt. „Póli­tísk ábyrgð ráð­herra er engin á því.“ Þetta kom fram í við­tali við Björgu í fréttum RÚV.

Þar sagði hún enn fremur að ráð­herra beri ábyrgð á öllum emb­ætt­is­at­höfnum öllum sam­kvæmt 14. grein stjórn­ar­skrár­innar og verði sóttur fyrir Lands­dómi fyrir emb­ætt­is­brot. „En eins og menn vita þá er það ein­göngu í alvar­leg­ustu til­vikum sem slíkt myndi ger­ast að emb­ætt­is­brot sé svo alvar­leg­t.“

Björg segir að rökin með því að ráð­herra hafi end­an­legt skip­un­ar­vald dóm­ara og sé því ekki end­an­lega bund­inn af til­lögum dóm­nefnda sem leggja til skipan dóm­ara séu þau að ráð­herr­ann beri ábyrgð­ina. „En í raun­inni virð­ist sem í alla­vega fram­kvæmd­inni birt­ist engin slík ábyrgð. Hann tekur í raun enga ábyrgð á því að hafa verið dæmdur brot­leg­ur.“

Að hennar mati dregur sú þróun sem átt hefur sér stað að und­an­förnu gefi til­efni til að hafa áhyggjur af því að sjálf­stæði dóms­valds og dóm­stóla sé ekki eins og það eigi að vera.

Auglýsing
Sérstaklega ef það virð­ist ætla að verða fastur liður að Alþingi sam­þykki frá­vik ráð­herra frá til­lögum dóm­nefnd­ar. Þegar lögum var breytt árið 2010, og dóm­nefnd gert að meta hæfi umsækj­enda með þeim hætti sem gert er í dag, þá hafi það m.a. verið gert að danskri fyr­ir­mynd. Þar hefur ráð­herra aldrei vikið frá til­lögum dóm­nefnd­ar. Hér virð­ist frekar verið að und­ir­búa að gera það frekar að reglu að Alþingi sam­þykki, og hafi end­an­legt ákvörð­un­ar­vald um að skipa dóm­ara umfram það sem lagt sé til af hæfn­is­nefnd. „Það finnst mér þróun sem er ástæða til að hafa áhyggjur af.

Ráð­herra braut lög

19. des­em­ber 2017 komst Hæsti­réttur Íslands að þeirri nið­ur­stöðu að Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra hafi brotið gegn ákvæði stjórn­sýslu­laga við skipan Lands­rétt­ar­dóm­ara. Dóm­stóll­inn tók afdrátt­ar­lausa efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Ef dóms­mála­ráð­herra ætlar að víkja frá áliti dóm­nefndar um veit­ingu dóm­ara­emb­ættis verður slík ákvörðun að vera reist á frek­ari rann­sókn ráð­herra, líkt og kveðið er á um í stjórn­sýslu­lögum.

Í dómi Hæsta­réttar segir að það liggi ekki fyrir að Sig­ríður hafi ráð­ist í frek­ari rann­sókn á þeim atriðum sem vörð­uðu veit­ingu þeirra fjög­urra dóm­ara­emb­ætta sem málið snérist um og rök­stuðn­ingur hennar til for­seta Alþing­is, sem settur var fram í bréfi dag­sett 28. maí 2017, um að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar full­nægði ekki lág­marks­kröf­um.

Sig­ríður hefur aftekið það með öllu að segja af sér vegna máls­ins og nýtur stuðn­ings for­ystu­manna rík­is­stjórn­ar­innar til þess að sitja áfram.

Tveir vilja bætur

Tveir þeirra sem dóm­nefnd hafði metið á meðal 15 hæf­ustu stefndu rík­inu í ofan­greindu máli. Þeir eru Jóhannes Rúnar Jóhanns­son og Ást­ráður Har­alds­son. Hinir tveir sem urðu af emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara vegna ákvörð­unar Sig­ríðar hafa gert kröfu á ríkið um greiðslu bóta vegna þessa. Annar þeirra, Jón Hösk­ulds­son, und­ir­býr nú lög­sókn á hendur rík­inu til að fá slíkar greidd­ar. Hinn, Eiríkur Jóns­son, hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann fari sömu leið. Á mbl.is í dag er haft eftir lög­manni hans, Grími Sig­urðs­syni, að það sé algjör­lega ein­boðið að þeirra mati að bóta­skylda sé til staðar í mál­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent