Setur á fót nefnd til að endurskoða skipan dómara í Félagsdóm

Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ákveðið að skipa nefnd til að endurskoða hvernig dómarar eru skipaðir í Félagsdóm. Þetta var gert í kjölfar athugasemda sem bárust frá GRECO.

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, til­kynnti á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun að hann hefði ákveðið að skipa nefnd til að end­ur­skoða skipan dóm­ara í Félags­dóm. Á meðal þess sem nefndin mun skoða er val á þeim sem sitja í dómnum og hvaða hæfn­is­kröfur verði gerðar til þeirra. Er þetta gert meðal ann­ars vegna athuga­semda frá GRECO, sam­tökum ríkja innan Evr­ópu­ráðs­ins gegn spill­ingu.

Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið segir að í úttekt GRECO hafi komið fram að þótt núver­andi for­seti Félags­dóms væri hér­aðs­dóm­ari þá væru engar kröfur gerðar hvað það varðar í lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deil­ur. GRECO benti einnig á að engar sér­stakar reglur gildi um skipan þess­ara dóm­ara og að stöður þeirra séu ekki aug­lýst­ar.

Í úttekt GRECO kemur fram að úrskurðir og dómar Félags­dóms eru end­an­legir og verður ekki áfrýj­að. Með vísan til þess er það álit GRECO að eðli­legt væri að gera þá lág­marks­kröfu að dóm­endur til­nefndir af Hæsta­rétti færu í gegnum ráðn­ing­ar­ferli sem tryggði sjálf­stæði, óhlut­drægni og gagn­sæi. Jafn­framt bæri að aug­lýsa stöður þeirra líkt og þegar dóm­arar eru almennt skip­aðir í stöður hér á landi.

Auglýsing

Í lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur er gerð krafa um að þeir dóm­arar sem Hæsti­réttur skipar hafi lokið emb­ætt­is­prófi í lög­fræði. Engar sér­stakar hæfn­is­kröfur eru gerðar í lögum til hinna dóm­ar­anna sem skipa félags­dóm, aðrar en að þeir séu íslenskir rík­is­borg­ar­ar, fjár síns ráð­andi og með óflekkað mann­orð.

Lög um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur eru frá árinu 1938 og hafa litlar breyt­ingar orðið á kafl­anum um Félags­dóm frá því að lögin tóku gildi. Fyrir liggur að strang­ari hæfn­is­kröfur eru gerðar til dóm­enda í sér­dóm­stólum um ágrein­ing milli aðila vinnu­mark­að­ar­ins hjá öðrum Norð­ur­landa­þjóð­um.

Í ljósi þessa og til að bregð­ast við athuga­semdum GRECO hefur félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra ákveðið að skipa nefnd með full­trúum aðila vinnu­mark­að­ar­ins og vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins til að end­ur­skoða gild­andi fyr­ir­komu­lag og gera til­lögu að breyt­ingum á skipan dóm­ara í Félags­dóm.“

Ísland hefur verið aðili að GRECO frá árinu 1999. Sam­tökin hafa eft­ir­lit með því hvort og hvernig aðild­ar­ríkin fylgja til­mælum Evr­ópu­ráðs­ins um aðgerðir á þessu sviði og gera reglu­lega úttektir í því skyni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent