Um 1.150 erlendir ríkisborgarar atvinnulausir

Alls fengu 1.660 útlendingar úthlutað atvinnuleyfi frá Vinnumálastofnun á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs. Um 1.150 erlendir ríkisborgarar voru atvinnulausir í lok nóvember.

Mikill skortur hefur verið á vinnuafli á Íslandi á undanförnum árum, sem hefur gert það að verkum að fleiri erlendir ríkisborgarar koma hingað til lands til að starfa en áður.
Mikill skortur hefur verið á vinnuafli á Íslandi á undanförnum árum, sem hefur gert það að verkum að fleiri erlendir ríkisborgarar koma hingað til lands til að starfa en áður.
Auglýsing

Á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2017 gaf Vinnu­mála­stofnun út um 1.660 atvinnu­leyfi. Helm­ingur þeirra útlend­inga sem hafði fengið atvinnu­leyfi á árinu 2017 er yngri en 30 ára. Þetta kemur fram í Hag­sjá Lands­bank­ans sem birt var í morg­un, en í henni er áhersla lögð á að skoða vinnu­mark­að­inn.

Þar segir að um 1.150 erlendir rík­is­borg­arar hafi verið atvinnu­lausir í lok nóv­em­ber, eða 28 pró­sent allra atvinnu­lausra á land­inu. Það sam­svarar um 4,6 pró­sent atvinnu­leysi meðal erlendra rík­is­borg­ara, sam­kvæmt Hag­sjá Lands­bank­ans. Vert er að taka fram að atvinnu­leysi á Íslandi er heilt yfir mjög lágt, eða 1,7 pró­sent í nóv­em­ber síð­ast­liðn­um. Sé litið á tólf mán­aða með­al­tal mælist það 2,8 pró­sent.

Í Hag­sjánni kemur fram að sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun voru 55 erlend fyr­ir­tæki starf­andi hér á landi í nóv­em­ber 2017 og var fjöldi starfs­manna á þeirra vegum tæp­lega 500. Starfs­menn starfs­manna­leiga voru um 1.900 í nóv­em­ber á vegum 30 starfs­manna­leiga og virð­ist þeim starfs­mönnum fara fækk­andi.

Útlend­ingum mun halda áfram að fjölga hratt

Gert er ráð fyrir því að aðfluttir íbúar til Íslands verði 23.385 fleiri en brott­­fluttir á tíma­bil­inu 2017-2021, sam­kvæmt mann­­fjölda­­spá Hag­­stof­unnar sem birt var í októ­ber. Aðfluttir eru fyrst og fremst erlendir rík­­is­­borg­­ar­­ar. Um síð­­­ustu ára­­mót voru erlendir rík­­is­­borg­­arar 30.380 hér­­­lend­­is. Þeim mun því fjölga um 77 pró­­sent á örfáum árum ef gengið er út frá því að allir aðfluttir umfram brott­­flutta séu erlendir rík­­is­­borg­a.

Auglýsing
Það má samt ætla að erlendu rík­­is­­borg­­ar­­arnir sem hingað koma verði enn fleiri. Á und­an­­förnum árum hafa fleiri Íslend­ingar flutt burt frá land­inu en til þess og Hag­­stofan gerir ráð fyrir því að sú þróun haldi áfram. Sam­­setn­ing þeirra íbúa sem búa á Íslandi mun því breyt­­ast ansi skarpt á næstu örfáu árum.

Ástæða þess að útlend­ingum hér­­­lendis fjölgar svona mikið er auð­vitað efna­hags­­upp­­­sveifl­­an. Á Íslandi verða til mörg þús­und störf á ári í tengslum við ferða­­þjón­ustu, bygg­inga­vinnu og aðra afleidda þjón­­ustu. Flest störfin eru lág­­launa­­störf og ekki er til vinn­u­afl hér­­­lendis til að anna eft­ir­­spurn eftir starfs­­fólki. Þess vegna flykk­ist erlent vinn­u­afl hingað til að vinna þessi störf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent