Peningastefnunefnd: Þörf á meira aðhaldi í ríkisfjármálum

Áframhaldandi spenna er í hagkerfinu. Krefjandi kjarasamningar eru framundan, með tilliti til hagstjórnarinnar.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Í skýrslu pen­inga­stefnu­nefndar til Alþingis, sem birt hefur verið á vef Seðla­bank­ans, kemur fram að þörf sé á miklu aðhaldi í rík­is­fjár­mál­unum á næst­unni. Tölur þjóð­hags­reikn­inga frá því í des­em­ber hafi sýnt meiri spennu í hag­kerf­inu, og meiri vöxt eft­ir­spurn­g­ar, en búist hafði verið við í nóv­em­ber­spá bank­ans. „Nefnd­ar­menn voru einnig sam­mála um að aðhaldið þyrfti að vera meira en ella slakni á aðhaldi í rík­is­fjár­málum á þessu ári miðað við það sem gert var ráð fyrir í nóv­em­ber. Voru nefnd­ar­menn sam­mála um að pen­inga­stefnan myndi á kom­andi miss­erum ráð­ast af fram­vindu efna­hags­mála, þ.m.t. stefn­unni í opin­berum fjár­málum og nið­ur­stöðu kjara­samn­inga.“

Í skýrsl­unni er enn fremur fjallað um verð­bólgu­horf­ur, og gerir spá Seðla­bank­ans ráð fyrir að verð­bólgan þok­ist upp á við á næstu miss­erum í átt að 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­að­inu, en verð­bólga mælist nú 1,9 pró­sent. Meg­in­vextir bank­ans eru nú 4,25 pró­sent.

Það sem helst hefur haldið lífi í verð­bólg­unni, ef svo má segja, er mikil hækkun hús­næð­is­verðs á síð­ustu árum. Merki hafa þó komið fram um það að und­an­förnu, að það sé tekið að hægja á verð­hækk­un­um, en á und­an­förnu ári hefur hús­næð­is­verð hækkað um tæp­lega 13 pró­sent. Í júlí í fyrra var hækk­unin á ári rúm­lega 20 pró­sent, sem þá var mesta og hrað­asta hækkun hús­næð­is­verðs meðal þró­aðra ríkja í heim­in­um.

Auglýsing



Atvinnu­leysi mælist nú 2 til 3 pró­sent, og virð­ist mikil spenna á vinnu­mark­aði. Það er vöntun á vinnu­afli víða, ekki síst í bygg­ing­ar­geir­anum og í ferða­þjón­ustu.

Í skýrslu pen­inga­stefnu­nefndar er enn fremur fjallað um þróun mála þegar kemur að almennu verð­lagi. Er því meðal ann­ars velt upp hvort aukin sam­keppni í verslun hafi haft áhrif á verð­lags­þró­un. „Aukin sam­keppni við net­verslun og inn­koma alþjóð­legra smá­sölurisa á inn­lendan smá­sölu­markað kunna að hafa dregið eitt­hvað úr áhrifum geng­is­lækk­unar krón­unnar sl. sumar á verð­lag. Verð inn­lendrar vöru hafði í des­em­ber hækkað um 1% milli ára en hafði lækkað um 1,6% milli ára í júní sl. Inn­lendur verð­bólgu­þrýst­ingur hefur því auk­ist á þann mæli­kvarða að und­an­förn­u,“ segir í skýrsl­unni.

Í pen­inga­stefnu­nefnd­inni eru Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri og for­mað­ur, Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, Þór­ar­inn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ing­ur, Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við HÍ, og Katrín Ólafs­dótt­ir, lektor í hag­fræði við HR.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent