Fyrrverandi varaformaður VG telur daga Sigríðar sem ráðherra senn talda

Björn Valur Gíslason segir að þess megi vænta að staða Sigríðar Á. Andersen verði rædd á flokksráðsfundi Vinstri grænna um næstu helgi. Flokkurinn þurfi að taka á stöðunni með einhverjum hætti „ef ekki á illa að fara.“

Björn Valur Gíslason var varaformaður Vinstri grænna þar til í október 2017.
Björn Valur Gíslason var varaformaður Vinstri grænna þar til í október 2017.
Auglýsing

Björn Valur Gísla­­son, fyrr­ver­andi þing­­maður og vara­­for­­maður Vinstri grænna (VG), segir að það sé ekki óvar­legt að ætla að dagar Sig­ríðar Á. And­er­sen í emb­ætti dóms­mála­ráð­herra séu senn tald­ir.

Í nýrri stöðu­upp­færslu á heima­síðu sinni segir Björn Valur að trú­verð­ug­leiki Sig­ríðar sé veru­lega lask­aður og að fátt bendi til þess að hann muni lag­ast í bráð. „Vinstri græn halda flokks­ráðs­fund um næstu helgi í Reykja­vík en flokks­ráð er æðsta stofnun hreyf­ing­ar­innar milli lands­funda. Það má vænta þess að staða dóms­mála­ráð­herra verði rædd á fund­inum og kæmi mér ekki á óvart flokks­ráð taki afstöðu til þess hvort ráð­herr­ann njóti trausts flokks­manna eða ekki. Um annað eins hefur nú verið ályktað á fundum flokks­ins. Vinstri græn eru að lenda í nokk­urri klemmu vegna stöðu dóms­mála­ráð­herr­ans og munu þurfa að taka á því með ein­hverjum hætti ef ekki á illa að fara.“

Björn Valur lét af emb­ætti vara­for­manns Vinstri grænna í októ­ber síð­ast­liðn­um.

Auglýsing

Umboðs­maður sendi bréf

Ástæðan fyrir stöðu Sig­ríðar er ákvörðun hennar um að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­nefndar um skipun 15 dóm­­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­ustu. Alþingi sam­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Hæst­i­­réttur komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í des­em­ber að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­nefnd­­ar­inn­­ar. Í gær birti Stundin svo gögn sem sýna að sér­­fræð­ingar stjórn­­­ar­ráðs­ins höfðu varað ráð­herr­ann við því að svona gæti far­ið.

Í fréttum RÚV í kvöld var greint frá því Umboðs­maður Alþing­is hafi ritað bréf til dóms­­mála­ráð­herra 8. janú­ar síð­ast­lið­inn þar sem hann óskaði eft­ir upp­­lýs­ing­um vegna skip­un­ar henn­ar á dóm­ur­um í Lands­rétti. Þetta gerði hann til að und­ir­­búa sig fyr­ir fund sem hann var boð­aður á hjá stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd Alþing­is 18. janú­­ar.  



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent