Ekki hlutverk forsætisráðuneytisins að segja til um hvort siðareglur hafi verið brotnar

Katrín Jakobsdóttir svarar fyrirspurn Björns Levís varðandi það hvort Bjarni Benediktsson hafi gerst brotlegur við siðareglur ráðherra.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

Sam­kvæmt siða­reglum ráð­herra hefur for­sæt­is­ráðu­neytið ráð­gef­andi hlut­verk gagn­vart ráð­herrum um túlkun þeirra. Það er hins vegar ekki hlut­verk for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins að kveða upp úrskurði um það hvort siða­reglur hafa verið brotnar í ein­stökum til­vik­um.

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jak­obs­dóttur við fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­son­ar, þing­manni Pírata, í gær­kvöldi.

Spurn­ingin var sú hvort Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafi brotið siða­reglur með töfum á birt­ingu skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæð­u­m. Í byrjun jan­úar 2017 var skýrsla starfs­hóps sem skoð­aði umfang aflandseigna Íslend­inga birt og áætl­­aði hversu miklu eig­endur slíkra eigna hefðu stungið undan skatti.

Auglýsing

Skýrslan kynnt 3 mán­uðum fyrir birt­ingu

Skýrslan var unnin sem við­bragð við opin­berun Panama­skjal­anna svoköll­uðu. Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í maí 2016 að sér­stöku teymi, með aðkomu utan­­að­kom­andi sér­­fræð­inga, yrði falið að „gera mat á umfangi fjár­­­magnstil­­færslna og und­an­­skota á aflands­­svæðum sam­hliða því að áætla tekju­tap hins opin­bera af slíkri starf­­sem­i.[...]Við höfum skyldur til þess að draga fram og skýra hvert umfang skattsvikanna var. Hvert er umfang vand­ans? Hversu mikið tapast? Hversu algengt var að þetta félaga­form, þessi lönd, þessi svæði, væru nýtt til þess að skjóta sér undan íslenskum lög­­um? Það finnst mér sjálf­­sagt og eðli­­legt að kanna. Mér finnst það frum­­skylda okkar að gefnu þessu til­­efni núna að taka það út sér­­stak­­lega og verður það meg­in­verk­efni þessa sér­­staka teymis sem ég hyggst fela þetta hlut­verk þannig að við getum haft betri grund­­völl undir umræðu um umfang vand­ans.“

Þessi hópur starf­aði frá vor­inu 2016 undir for­­mennsku Sig­­urðar Ing­­ólfs­­sonar hag­fræð­ings. Og hann skil­aði skýrslu til fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­is­ins í sept­­em­ber sama ár, rúmum mán­uði fyrir kosn­­ing­­arnar sem haldnar voru fyrr en áætlað var vegna aflands­­fé­laga­op­in­ber­anna Pana­ma­skjal­anna.

Skýrslan var kynnt fyrir Bjarna Bene­dikts­­syni, þáver­andi fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, í byrjun októ­ber sama ár. Skýrslan var hins vegar ekki birt fyrr en 6. jan­ú­­ar, eftir að Kjarn­inn hafði ítrekað spurst fyrir um afdrif henn­­ar.

Braut Bjarni siða­regl­ur?

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þáver­andi þing­flokks­for­maður Vinstri grænna og núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, óskaði eftir því skrif­lega að umboðs­­maður Alþingis myndi fjalla um hvort Bjarni hefði brotið gegn 6. grein c siða­reglna ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um aflands­­fé­lög fyrr en nokkrum vikum eftir að hún lá fyr­­ir.

Umboðs­maður til­kynnti síðar um að ekki væri til­efni til að taka til athug­unar hvort Bjarni hefði brotið gegn siða­­reglum ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um eignir Íslend­inga í aflands­­fé­lögum fyrr en raun bar vitni. Ástæðan var fyrst og fremst að Bjarni hafði við­­ur­­kennt að það hafi verið mis­­tök af hans hálfu að birta ekki skýrsl­una mun fyrr en gert var.

End­ur­skoðun siða­reglna á döf­inni

Rík­­is­­stjórnin fjall­aði á fundi í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins um siða­­reglur ráð­herra. Þar var sam­þykkt end­ur­skoðun siða­reglna ráð­herra og stóð til að skipa starfs­hóp sem fer með end­ur­skoðun á siða­regl­un­um. Kom fram í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni að mark­miðið með end­­ur­­skoðun regln­anna væri að skerpa á hags­muna­­skrán­ingu ráð­herra með það í huga að skýr aðskiln­aður verði milli almanna- og sér­­hags­muna, auk þess sem skerpt verði á því hvernig megi inn­­­leiða „heil­indi“ í starfi hjá hinu opin­bera, í víð­­ara sam­hengi.

Nú eru í gildi siða­­reglur ráð­herra nr. 190/2017 og hafa þær ekki tekið miklum efn­is­­legum breyt­ingum frá því þær voru fyrst gefnar út vorið 2011, að því er sagði í til­­kynn­ing­unn­i. 

Ákveðið var á fund­inum að for­­sæt­is­ráð­herra myndi kalla til utan­­að­kom­andi sér­­fræð­inga til ráð­gjafar „ekki ein­ungis varð­andi siða­­reglur ráð­herra heldur einnig varð­andi heil­indi í opin­berum störfum í víð­­ara sam­heng­i.“

Ráð­­gert var að setja á fót starfs­hóp sem mun ráð­­leggja og aðstoða við að ná fram eft­ir­far­andi þáttum úr stjórn­­­ar­sátt­­mála: „Rík­­is­­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­­­málum og stjórn­­­sýslu. Einn þáttur í því er að yfir­­fara reglur um hags­muna­­skrán­ingu bæði ráð­herra og þing­­manna með hlið­­sjón af ábend­ingum og alþjóð­­legum við­mið­­um. Annar þáttur er breyt­ingar á lögum sem varða vernd upp­­­ljóstr­­ara og umbætur í umhverfi stjórn­­­sýslu og við­­skipta, meðal ann­­ars í takt við ábend­ingar alþjóða­­stofn­ana.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent