Oddviti Vinstri grænna spyr hvort að almenningur eigi að kaupa hlut Eyþórs í Árvakri

Líf Magneudóttir spyr hvort að það eigi ekki að fara af stað með söfnun meðal almennings til að kaupa hlut Eyþórs Arnalds í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Líf Magneudóttir
Auglýsing

Líf Magneu­dótt­ur, odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík, spyr hvort að almenn­ingur ætti ekki að kaupa hlut Eyþórs Arn­alds, nýs leið­toga Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni, í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Í kjöl­farið væri hægt að reka blaðið að hluta sem „sam­fé­lags­blað.“

Eyþór á 22,87 pró­sent hlut í Árvakri. Hlut­inn eign­að­ist hann á síð­asta ári.

Eyþór, sem  er stjórn­ar­maður í alls 26 eign­ar­halds­fé­lögum og fyr­ir­tækj­um, sagði við RÚV í gær að hann sé þegar byrj­aður að slíta á hags­muna­tengsl í ljósi nýrrar stöðu sinn­ar. Þar sagði hann einnig að hann ætl­aði sér að hafa „al­gjöran aðskilnað á því sem að ekki pass­ar.“

Auglýsing

Eyþór sagði einnig við Morg­un­blaðið að hann myndi fara úr stjórn Árvak­urs og „slíta á þau tengsl“. Hann muni selja hlut­inn ef kaup­andi finnst í tæka tíð.

Líf, sem sæk­ist eftir því að leiða áfram fyrir Vinstri græn í Reykja­vík í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um, setti stöðu­upp­færslu á Face­book í gær­kvöldi þar sem hún spurði hvort að almenn­ingur ætti ekki að eign­ast hlut Eyþórs í Árvakri og reka það að hluta sem „sam­fé­lags­blað“. „Nú er bæði tæki­færi til að losa Arn­alds fljótt undan hags­muna­tengslum sínum eftir að hann varð odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík og eign­ast hlut í sögu­frægum fjöl­miðli ef nægi­legt fjár­magn safn­ast fljótt. Þetta væri ein­hvers konar lýð­ræð­is­verk­efni lík­a...Á ég að stofna söfnun á Karol­ina?,“ spurði Líf. Þar á hún við hvort að setja eigi af stað hóp­fjár­mögnun á síð­unni Karol­ina Fund.

Hvernig væri ef almenn­ingur eignaðist 20% hlut Eyþórs Arn­alds í Morg­unblaðinu og það yrði rekið að hluta til sem samfé...

Posted by Líf Magneu­dóttir on Sunday, Janu­ary 28, 2018


Kom inn sem eig­andi í fyrra

Eig­andi Árvak­­urs er félagið Þór­s­­mörk. Það félag hefur að mestu verið í eigu aðila sem tengj­­ast stærstu stoðum íslensks sjá­v­­­ar­út­­­vegs. Í lok árs 2016 áttu slíkir aðilar um 96 pró­­sent hlut í Þór­s­­mörk.

Í apríl var til­­kynnt að Eyþór Arn­alds hefði keypt 26,6 pró­sent hlut í Árvakri. Um væri að ræða allan hlut Sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ris­ans Sam­herja, hlut Síld­­ar­vinnsl­unnar og Vísis hf.

Upp­­lýs­ingar um eign­­ar­hald Árvak­­urs voru upp­­­færðar á heima­­síðu Fjöl­miðla­­nefndar í byrjun júlí í fyrra. Þær upp­­lýs­ingar end­­ur­­spegl­uðu eign­­ar­haldið eftir að 200 millj­­óna króna hluta­fjár­­aukn­ing hefði átt sér stað. Fjöl­miðlar greindu frá því að Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga hefði lagt til mest af þeim pen­ingum sem lagðir voru til við­­­bótar í félagið og við það minn­k­aði hlutur Ram­ses II, félags í eigu Eyþórs Arn­alds og er nú 22,87 pró­­­sent. Kaup­­­fé­lag Skag­­­firð­inga á nú 14,15 pró­­­sent í Þór­s­­­mörk í gegnum félagið Íslenskar sjá­v­­­­ar­af­­­urð­­ir.

Það er ekki eins­dæmi að þátt­tak­endur í stjórn­málum eigi hlut í fjöl­miðli. Smári McCharthy, þing­maður Pírata, átti um tíma lít­inn hlut í Stund­inni og Ágúst Ólafur Ágústs­son, sem var kjör­inn þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í októ­ber 2017, á 5,69 pró­sent hlut í Kjarn­an­um. Ágúst Ólafur sagði sig sam­stundis úr stjórn mið­ils­ins þegar ljóst var að hann hygði á stjórn­mála­þátt­töku og er óvirkur eig­andi. Hlutur hans er í sölu­ferli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent