Spennan magnast innan verkalýðshreyfingarinnar

Sólveig Anna Jónsdóttir nýtur stuðnings formanns VR í embætti formanns Eflingar.

Sólveig Anna Jónsdóttir290118
Auglýsing

Mikil spenna hefur nú mynd­ast í bak­landi stétt­ar­fé­laga í land­inu, en til­kynnt var í gær um fram­boð Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur til for­manns emb­ættis Efl­ing­ar. 

Það er eitt stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins með 28 þús­und félags­menn. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, styður Sól­veigu Önnu til for­ystu, en hann sigr­aði með yfir­burð­uðum í for­manns­kosn­ing­unni í mars í fyrra og hlaut tæp­lega 63 pró­sent atkvæða.

Í VR eru 33 þús­und félags­menn, en það er stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins.

Auglýsing

Sól­veig Anna var gestur í Silfr­inu á RÚV í gær, og sagði þar meðal ann­ars að hún ætl­aði sér að tala röddu lág­launa­fólks og fólks­ins á gólf­inu. Það væri ekki hægt að sætta við það, að stórir hópar af fólki væru á launum sem ekki dygðu til þess að lifa af við núver­andi aðstæður á hús­næð­is­mark­aði. Sjálf er hún ófag­lærður starfs­maður á leik­skóla, en vinnur aðra vinnu með til að ná endum sam­an.

Í Morg­un­blað­inu í dag, segir Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, að hann muni ekki eftir að for­maður VR blandi sér með jafn afger­andi hætti í kosn­ingar í öðru félag­i. „Mér finnst mjög athygl­is­vert að for­mað­ur­ VR sé með svona bein­um hætti að hafa afskipti af kjöri í öðru ­fé­lagi. Ég man ekki eftir að hafa heyrt af slík­u,“ segir Gylfi í við­tali við Morg­un­blað­ið.

Á sér­stökum bar­áttu- og sam­­stöðu­fundi í Rúg­­brauðs­gerð­inni, í gær, þar sem fjallað var um stöð­una innan stétt­ar­fé­laga og meðal ann­ars til­kynnt um hið nýja fram­boð hjá Efl­ingu, þá sagð­ist Ragnar Þór vona það, að áfram­hald yrði á „bylt­ing­unni“ hjá stétt­ar­fé­lög­un­um. Hann sagði fulla þörf vera á end­ur­nýjun for­yst­unnar og að for­ysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar þyrfti að tala máli fólks­ins á gólf­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent