Félagsvísindastofnun komin með drög að skýrslu Hannesar

Rúmlega 300 blaðsíðna löng skýrsla Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins hefur verið afhent Félagsvísindastofnun. Skýrslan er á ensku. Enn liggur ekki fyrir hvenær sambærileg skýrsla Seðlabankans verður birt.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Auglýsing

Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands fékk drög að skýrslu Hann­esar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins afhent síð­ast­lið­inn föstu­dag. Hann­esi var falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efni um efni skýrsl­unnar í júlí 2014. Áætl­­aður kostn­aður verk­efn­is­ins var tíu millj­­­ónir króna og áætluð verk­­­lok voru í byrjun sept­­­em­ber 2015.

Þau verk­lok frest­uð­ust ítrek­að. Til stóð að kynna skýrsl­una 8. októ­ber 2017, rúmum tveimur árum eftir áætluð verk­lok, en af því varð ekki. Þá stóð til að kynna skýrsl­una 20. nóv­em­ber 2017 en því var einnig frestað. Í pistli sem Hannes skrif­aði á vef­inn Press­una sagð­ist hann ætla að fresta skilum til að „gefa þeim, sem minnst er á í henni, kost á að skýra mál sitt, leið­rétta og gera athuga­­semd­­ir.“ Kynn­ingin átti þá að fara fram 16. jan­ú­ar 2018.

Af því varð heldur ekki.

Auglýsing

Ekki hægt að svara hvenær skýrslan verður birt

Þótt Hannes stýri verk­inu þá er samn­ing­ur­inn sem gerður var um gerð þess milli fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Félags­vís­inda­stofn­un­ar. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um afdrif skýrslu um verk­efnið segir Guð­björg Andrea Jóns­dótt­ir, for­stöðu­maður stofn­un­ar­inn­ar, að hún hafi fengið drög að skýrslu til yfir­lestrar síð­ast­lið­inn föstu­dag. Það væri hins vegar ekki hægt að svara því á þessu stigi hvenær skýrslan verði gerð opin­ber.

Komið hefur fram að skýrslan sé 315 blað­síður að lengd og að hún sé á ensku.

Hannes hefur þó að hluta til fjallað um inni­hald hennar á opin­berum vett­vangi á und­an­förnum árum. Hann skrif­aði grein í Morg­un­­blaðið 21. apríl 2015 þar sem hann opin­ber­aði í fyrsta sinn hluta af því sem hann er að skrifa um í skýrslu sinni. Í grein­inn fjall­aði hann í löngu máli um söl­una á FIH-­­­bank­an­um, sem tekin var sem veð fyrir neyð­­­ar­láni Seðla­­­banka Íslands til Kaup­­­þings 6. októ­ber, þegar Davíð Odds­­­son stýrði enn Seðla­­­bank­an­­­um.

Þá skrif­aði hann grein í Morg­un­blaðið í til­efni af sjö­tugs­af­mæli Dav­íðs Odds­son­ar, rit­stjóra blaðs­ins, þann 17. jan­úar 2018. Greinin birt­ist einnig á vefnum Press­unni. Í henni fjallar Hannes einnig um mál sem tengj­ast erlendum áhrifa­þáttum banka­hruns­ins.

Seðla­bank­inn er líka að gera skýrslu

Már Guð­­munds­­son seðla­­banka­­stjóri greindi frá því í febr­­úar 2015 að hann ætl­­aði að láta taka saman skýrslu um til­­drög þess að Kaup­­þing fékk neyð­­ar­lán upp á 500 millj­­ónir evra frá bank­­anum 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett og Geir H. Haarde, þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland í sjón­­varps­ávarpi.

Sum­arið 2017 greindi Kjarn­inn frá því að Seðla­bank­inn hefði ákveðið að bæta sölu­­ferli FIH bank­ans – en sá danski banki var tek­inn sem veð fyrir lán­inu – við skýrsl­una. „Sá hluti er mjög umfangs­­mik­ill og snertir m.a. þróun efna­hags- og banka­­mála í Dan­­mörku. Vegna mik­illa anna starfs­­manna við önnur verk hefur verið erf­ið­­leikum bundið að tryggja næga krafta í þetta verk – en það er sem sagt langt á veg kom­ið,“ sagði í svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Til stóð að birta umrædda skýrslu í fyrra­haust, á svip­uðum tíma og skýrsla Hann­esar um sam­bæri­legt efni átti að vera kynnt. Þeirri birt­ingu var þó frestað fram í jan­ú­ar. Þegar Kjarn­inn spurð­ist fyrir um afdrif skýrsl­unnar um miðjan jan­úar sagði í svari bank­ans að ekk­ert væri nánar hægt að segja um tíma­setn­ingu á birt­ingu henn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent