Fer fram á að samningar um stöðugleikaframlög verði gerðir opinberir

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vill að forseti Alþingi beiti sér fyrir því að samningar kröfuhafa föllnu bankanna við íslenska ríkið um greiðslu stöðugleikaframlaga verði gerðir opinberir.

Sigmundur Davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fór fram á það í dag að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, beiti sér fyrir því að samn­ingar kröfu­hafa föllnu bank­anna við íslenska ríkið um greiðslu stöð­ug­leika­fram­laga verði gerðir opin­ber­ir. Sig­mundur Davíð var for­sæt­is­ráð­herra þegar samn­ing­arnir voru gerð­ir.

Ástæða þess að Sig­mundur Davíð fór fram á þetta voru svör Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma um hvort ríkið ætl­aði að afsal­aði sér for­kaups­rétti vegna Arion banka og hvort að ríkið ætl­aði sér að selja sinn 13 pró­sent hlut í bank­an­um.

Katrín svar­aði því til að ákvörðun um hinn meinta for­kaups­rétt og virkni hans hefði verið tekið þegar samn­ing­arnir hefðu verið gerðir og Sig­mundur Davíð hefði verið for­sæt­is­ráð­herra. Engin ákvörðun hefði verið tekin um að selja hlut rík­is­ins í Arion banka en að í stjórn­ar­sátt­mál­anum kæmi skýrt fram að ríkið stefndi að því að minnka hlut sinn í banka­kerf­inu, sem væri sem stendur sá mesti sem ríki ætti í slíku í Evr­ópu.

Auglýsing

Stein­grímur sagði sjálfur að ekki væri til­efni til þess að hann beitti sér sér­stak­lega til að samn­ing­arnir yrðu gerðir opin­berir en benti á að hægt væri að óska slíkra upp­lýs­inga á vett­vangi þings­ins með öðrum hætti en að beina því til hans.

For­kaups­rétt­ar­á­kvæði í samn­ing­unum

Til­­kynnt var um aðgerð­­ar­á­ætlun stjórn­­­valda við losun hafta í byrjun júní 2015. Kynn­ing á aðgerð­unum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsend­ingu. Skömmu áður höfðu stærstu kröf­u­hafar föllnu bank­anna lagt fram til­­­boð um að mæta stöð­ug­­leika­skil­yrðum stjórn­­­valda til að sleppa við stöð­ug­­leika­skatt.

Þegar samið var um stöð­u­­­­leika­fram­lög setti íslenska ríkið inn ákvæði þess efnis að það gæti gengið inn í við­­­­skipti með hluti í Arion banka ef gengið yrði lægra en 0,8 af bók­­­­færðu eigin fé bank­ans. Í því sam­komu­lagi var líka samið um að Kaup­­­­­­þing þurfi að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­­­­­­lok 2018. Ef það myndi ekki tak­­­­­ast myndi rík­­­­­­is­­­­­­sjóður leysa bank­ann til sín.

Vog­un­­­ar­­­sjóð­irnir Taconic Capi­tal, Och-Ziff Capi­tal Mana­gement, Attestor Capi­tal og fjár­­­­­fest­inga­­­bank­inn Gold­man Sachs  keyptu sam­tals hlut í Arion banka af Kaup­­­­þingi á tæp­lega 50 millj­­­­arða króna í fyrra. Verðið sem greitt var fyrir var  yfir 0,8 krónur á hverja krónu af bók­­­­færðu eigin fé Arion banka. Ríkið gat því ekki nýtt sér for­kaups­rétt­inn þar sem hann virkj­að­ist ekki. Auk þess áttu sjóð­irnir og Gold­man Sachs sam­tals kaup­rétt af um 22 pró­senta hlut til við­bótar sem þeir ákváðu í ágúst að nýta sér ekki.

Vilja gefa þjóð­inni þriðj­ung í bank­anum

Í kosn­inga­stefnu Mið­flokks­ins fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar sagði að hann ætli sér að nýta sér for­kaups­rétt rík­is­ins að Arion banka. Hvernig flokk­ur­inn ætlar sér að gera það var þó ekki útfært. Sam­kvæmt þeim skil­yrðum sem sett voru um virkjun for­kaups­réttar rík­is­ins þegar samið var um stöð­ug­leika­fram­lögin þá telur ríkið ekki að það geti gengið inn í frek­ari sölu á hlut í Arion banka nema að slík sala fari fram á geng­inu 0,8 eða lægra miðað við eigið fé. Það er að minnsta kosti mat fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem sett var fram í minn­is­blaði til efna­hags- og við­skipta­nefndar sem lagt var fram á fundi nefnd­ar­innar í júní 2017.

Kosn­inga­stefna Mið­flokks­ins miðar að því að ríkið eign­ist Arion banka að fullu, að þriðj­ungur verði seldur í opnu útboði, að ríkið haldi eftir um þriðj­ungi og að þriðj­ungur verði gefin lands­mönn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent