Lindarhvoll búið að selja Lyfju og verður slitið

Með sölu á Lyfju til SID ehf. er ráðstöfun stöðugleika í umsýslu Lindarhvols lokið. Andvirði þeirra stöðugleikaeigna sem búið er að innleysa nemur um 207,5 milljörðum.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi æðstu ráðamenn þjóðarinnar, kynntu haftalosunaráætlun í júní 2015. Í henni fólst samkomulag við kröfuhafa um afhendingu stöðugleikaeigna.
Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi æðstu ráðamenn þjóðarinnar, kynntu haftalosunaráætlun í júní 2015. Í henni fólst samkomulag við kröfuhafa um afhendingu stöðugleikaeigna.
Auglýsing

Lind­ar­hvoll, sem stofnað var til að ann­ast umsýslu og sölu stöð­ug­leika eigna sem ríkið fékk afhent í kjöl­far sam­komu­lags við kröfu­hafa föllnu bank­anna, hefur lokið hlut­verki sínu og verður slit­ið. Alls nemur and­virði þeirra stöð­ug­leika­eigna sem búið er að inn­leysa um 207,5 millj­örðum króna en frá­talin eru fram­lög vegna við­skipta­bank­anna Arion banka og Íslands­banka og aðrar óinn­leystar eign­ir. 

Lind­ar­hvoll sam­þykkti að selja Lyfju hf. til félags­ins SID ehf., í eigu SIA III slhf., Þara­bakka ehf. og Kasks ehf., á mánu­dag. SID hafði átt hæsta til­boðið í opnu sölu­ferli fyr­ir­tæk­is­ins. Kaup­samn­ing­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um áreið­an­leika­könnun og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Kaup­veðrið hefur ekki verið gefið upp. 

Í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu segir að þar með sé ráð­stöfun stöð­ug­leika í umsýslu Lind­ar­hvols lok­ið. „Félagið hefur með söl­unni komið langstærstum hluta þeirra eigna sem því var falin umsýsla með í laust fé. Sam­komu­lag er um það milli stjórnar Lind­ar­hvols og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að fella við svo búið niður samn­ing sem ráðu­neytið gerði við félagið í apríl 2016 um úrvinnslu og umsýslu stöð­ug­leika­eigna frá og með 7. febr­ú­ar. Í kjöl­farið verður Lind­ar­hvoli ehf. slit­ið.“

Auglýsing
Í byrjun jan­úar greindi Kjarn­inn frá því að eignir sem metnar voru á 19 millj­arða króna, og voru hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi föllnu bank­anna, hefðu verið fram­seldar til Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LS­R).  Um er að ræða eignir sem Lind­­­ar­hvoll ehf. hefur haft til umsýslu og ekki telj­­­ast heppi­­­legar til sölu á almennum mark­aði. Fram­­sal eign­anna lækkar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­­­is­­­sjóðs við B-deild LSR um áður­­­greinda upp­­hæð. Sam­­kvæmt upp­­­lýs­ingum Kjarn­ans fólst í þessu að ýmsir láns­­­samn­ingar og óskráð hluta­bréf sem voru í umsýslu Lind­­­ar­hvols myndu fær­­­ast til LSR í þeim til­­­­­gangi að hámarka virði þeirra. 

Þær stöð­ug­leika­eignir sem eftir standa eru, sam­kvæmt til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins, þess eðlis að virði þeirra verður best inn­heimt með tíð og tíma. „ Að stærstum hluta er um að ræða kröfur í þrotabú og önnur inn­heimtu­mál, lána­samn­inga, fjár­sóps­eignir og skulda­bréf Kaup­þings, auk afkomu­skipta­samn­ings sem teng­ist sölu á Arion banka. Umsýslu og eft­ir­liti með umræddum eignum verður áfram sinnt í umboði rík­is­sjóðs og mun and­virði þeirra skila sér inn á stöð­ug­leik­a­reikn­ing rík­is­sjóðs við fulln­ustu. Til við­bótar eru nokkrar óveru­legar stöður í óskráðum hluta­bréfum og verður umsýslu þeirra komið fyrir í höndum við­eig­andi rík­is­að­ila.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent